Hlín


Hlín - 01.01.1925, Side 36

Hlín - 01.01.1925, Side 36
34 Híin og sveitafjelög mundu í samlögum, eftir atvikum, hæg- lega géta lagt fram 'h af kaupi garðyrkjuleiðbeinanda, og notendur lh. (Ef fjelögin þá ekki vilja leggja 2h fram, og láta garðeigendur fá vinnu ókeypis a. m. k. í fyrstu.) Jeg geri ráð fyrir að garðyrkjukonan starfaði í bænum eða sveitinni frá 1. maí til 1. október, 5 mánuði, og hefði í sveitinni, auk fæðis þar sem hún ynni, 120.00 um mán- uðinn eða 600.00 yfir tímann. (Alt að því helmingi hærra í bæ, ef hún þarf að fæða sig og leggja sjer til húsnæði.) — Þar af greiðir B. I. 200.00. — Fjelögin greiddu 200.00 og segjum garðeigendur 200.00. — Hver garðyrkjukona ætti ekki að hafa nema eina sveit til yfirferðar. — Par eru ef til vill 20 bæir. Pá eru það 10.00 sem kæmu á hvert býli. Vinnudagar stúlkunnar yrðu 120, fyrir þessar 10.00 ynni hún þá 6 daga til jafnaðar á hverju heimili. Enginn getur sagt að það sje dýr fræðsla eða dýr.vinna, þegar gera má ráð fyrir góðri vinnu hjá þeim, sem kann verkið vel og hefir góð áhöld. Niðurlag. Mörg og sterk öfl vinna nú að því með þjóð okkar, að draga úr fjarlægð og einangrun sveita og kauptúna, svo að þar megi verða aðgengilegra að búa og ánægjulegra. — íslenska ríkið leggur síma, vegi og brýr, sendir skip á hverja höfn o. s. frv. Klifar þrítugan hamarinn að ná til íbúanna, alt frá ystu annesjum til instu dala. — Bóndinn leggur hart á sig að bæta land sitt og húsakynni. Og svo þarf unga fólkið að lyfta þarna undir baggann: Fegra heimilin sem best og umhverfi þeirra, svo þar megi verða unaðslegt og gott að vera. Sú ræktun sem heimilismenn, ungir og gamlir, leggja hönd að og sjá gróa og þróast kringum sig, dregur þá, fremur flestu öðru, að átthögunum og heldur þeim þar föstum. — Hve miklu fegurra og byggilegra yrði okkar strjálbygða, hrjóstruga, fagra land, ef allir, ungir og gamlir, gerðu sjer það að skyldu að auka gróður þess, en eyða honum ekki. Halldóra Bjarnadóttir.

x

Hlín

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.