Hlín - 01.01.1925, Qupperneq 41
Hlin
39
kvénfjelagskonur værum í alla staði ánægðar með þessa
fyrstu kenslukonu, þótti okkur það ærinn galli, að hún
átti heima í Reykjavík. Af því leiddi, að við urðum að
kosta ferðir hennar til og frá, auk þess sem svo löng
ferðalög að vetrarlagi eru mjög örðug og stundum lítt
framkvæmanleg. Töldum við því heppilegra að fá kenslu-
konu, sem ætti heima hjer nær, enda stóð þá svo á, að
von var hingað á vel hæfri stúlku, Margrjeti Lafransdótt-
ur, sem dvalið hafði erlendis nokkur undanfarin ár, og
hefir hún haft á hendi handavinnukensluna í þessi tvö
ár síðan og farist það ágætlega.
Næsta námskeið byrjaði með desember sama ár og
stóð yfir í 3 mánuði eins og hið fyrsta. í sambandi við
handavinnunámskeiðið fór þá einnig fram kensla í mat-
reiðslu og hússtjórnarstörfum í tvo mánuði. Pá kenslu
annaðist Sigurborg kennslukona Kristjánsdóttir frá Múla
í ísafjarðarsýslu. Var þá stúlkunum skift í tvo flokka, er
nutu til skiftis kenslu í handavinnu og matreiðslu, sinn
mánuðinn hvor flokkur, en allar höfðu þær sameiginlegt
mötuneyti, þvf matreiðsludeildin matreiddi einnig handa
þeim, sem stunduðu handavinnuna. Mötuðust því við
sama borð 20 stúlkur, auk kenslukvenna beggja. Var þá
oft glatt á hjalla, en þó ætíð í hófi, því Sigurborg hefir
sjerstaka hæfileika til að stjórna, og oft var unun að sjá,
hve vel henni tókst að halda uppi reglu og stýra þessum
gáskafulla stúlknahóp. — Aldrei kom það fyrir að hún
hefði ekki nóg að starfa handa þessum 10 stúlkum, sem
voru samtímis við matreiðslunámið, því hverri var ætlað
sitt vissa verk þann og þann daginn. Að loknum mat-
reiðslustörfum hjelt Sigurborg fyrirlestra fyrir stúlkunum
um matreiðslu- og hússtjórnarstörf o. fl. — Rótt mat-
reiðslunámskeiðið stæði ekki yfir nema tvo mánuði, mun
óhætt að fullyrða, að stúlkurnar höfðu mjög gott af því,
og æskilegt þætti okkur að hægt væri að halda slík nám-
skeið oftar, helst á hverju ári, í sambandi við handá-