Hlín - 01.01.1925, Side 42
40
Hlin
vinnukensluna, en því miður munu engin tök á því
vegna fjárskorts o. fl.( en í þetta sinn var kenslukonan
að mestu leyti kostuð af Búnaðarsambandi Suðurlands og
Búnaðarfjelagi íslands.
Að síðasta handavinnunámskeiði, sem byrjaði með
nóvember í vetur, var svo mikil aðsókn, að við gátum
ekki tekið á móti nærri öllum, sem sóttu um inntöku.
Tókum við því það ráð að hafa námskeiðstímabilin tvö,
í þrjá mánuði hvort, og stendur því kenslan yfir frá
byrjun nóvember til aprílmánaðar loka. Á þennan hátt
gátum við tekið 32 stúlkur á bæði námskeiðin, 16 á hvort
og urðum þó að vísa nokkrum frá. Sýnir þessi aukna
aðsókn, að þörf er á slíkri kenslu, enda höfum við ekki
orðið annars varar, en að námskeiðin nytu hjer almenn-
ingshylli nú hin síðari árin, þótt fremur andaði kalt til
þeirra í byrjun frá einstaka mönnum, svo sem oft vill
verða, þá er um nýbreytni er að ræða.
Á námskeiðunum er kend ýmiskonar handavinna, svo
sem fatasaumur karla, kvenna og barna, fataviðgerðir,
prjón, hekl og útsaumur. Einna mest áhersla hefir verið
lögð á karlmannafatasauminn, því það er sú vinna, sem
flest sveitaheimili eiga erfiðast með að leysa af hendi svo
að vel sje, en mega þó síst án vera. Nemendur leggja
sjer til efni sjálfir og hafa öll not vinnunnar. Kenslugjald
hefir verið 30 — 35 krónur fyrir hvert 3 mánaða námskeið.
— í þessi þrjú ár, sem námskeiðin hafa starfað hjer,
hafa notið kenslu á þeim milli 50 og 60 stúlkur víðs-
vegar að úr sýslunni, og nokkrar hafa tekið tvö nám-
skeiðstímabil, og útlit er fyrir að aðsóknin aukist enn í
framtíðinni. — Óhætt mun að fullyrða, að margt af þess-
um stúlkum hefðu leitað til Reykjavíkur til náms, ef þær
hefðu ekki átt kost á þessari kenslu hjer. Hefði slíkt verið
allmikill kostnaðarauki fyrir sýslubúa, og auk þess má
telja víst, að kensla sú, er þær hefðu fengið þar, hefði
ekki orðið eins við þeirra hæfi, ekki orðið eins notadrjúg