Hlín - 01.01.1925, Page 43
Hlin
41
eins og sú, er þær hafa fengið hjer, þvi auk þess að
vera gagnlegur og mentandi skóli fyrir stúlkurnar, vinna
þær þau störf fyrir heimilin, sem þau geta ekki án verið,
en víðast hvar ekki hægt að leysa af hendi heima.
Nú á tímum er alment mikið talað um fólksekluna í
sveitunum og fólksstrauminn til sjávarþorpa og kaup-
staða, en myndu þá ekki námskeið eða sveitaskólar fyrir
unglingana, bæði konur og karla, vera besta og örugg-
asta læknisráðið við því? — Petta er spurning, sem allur
almenningur ætti að íhuga og reyna að leysa úr, og þá
er það ekki síður verkefni fyrir þing vort og landsstjórn
til úrlausnar.
H. Ó.
Heimilisiðnaðarnámskeið
var haldið í skólahúsinu á Laugum í Reykjadal frá 1.
febr. til marsloka að tilhlutun undirritaðra. — Kent var
vefnaður, saumur og smíði. Kendi Helga Kristjánsdóttir
vefnaðinn og hafði yfirstjórn námskeiðsins, Kristjana
Kristjánsdóttir á Grænavatni kendi sauma og Valdimar
Jósafatsson trjesmiður á Húsavík smiði. Nemendur voru
4 í vefnaði, 8 í saumum og 16 í smíði, en einn þeirra
veiktist í byrjun námskeiðsins. — Nokkrir sóttu um nám-
skeiðið, einkum, vefnað og smíði, sem kennararnir treyst-
ust ekki til að taka vegna anna. Allir voru nemendur vel
komnir til þroska, flestir yfir tvítugt.
Petta var unnið á námskeiðinu:
I. Vefnaður. Skrifuð vefnaðarfræði, kent að reikna út
garn í vefi Og setja þá upp. Settir voru upp 8 vefir og
ofið: 5 handklæði með hringavefnaði, 5 baðhandklæði, 4
litlir borðdúkar méð hálfdregilsgerð, 4 kommóðudreglar
og 1 lítill dúkur með þelamerkurvefnaði, 1 bakkadúkur,
4 bekkklæði með rósabragði, 1 á 3ja ál. bekk, hin minni,