Hlín


Hlín - 01.01.1925, Page 45

Hlín - 01.01.1925, Page 45
Hlin 43 Námskeið í bursta- og körfugerð fór fram á Akranesi síðastliðinn vetur að tilhlutun U. M. F. Akraness. Námskeiðið hófst í febrúar og stóð fram undir miðjan mars eða alls 5 vikna tíma. Kennari var Sigurður Símonarson, búsettur maður hjer á Akranesi. Hafði hann haustið 1923 sótt námskeið, er U. M. F. Akraness þá gekst fyrir og frú Herdís Jakobsdóttir frá Eyrarbakka var kennari við. En geta má þess, að Sigurður var í stöðugri vinnu allan þann tíma, er námskeið það stóð, og lærði því að eins í hjáverkum að loknu fullu dagsverki. Námskeiðið siðastliðinn vetur sóttu alls 33 nemendur, en sjálfráðir voru þeir um, hve oft þeir komu og greiddu að eins kenslugjald 35 aura þau kvöld, er þeir nutu kenslu. Var því mismunandi, hve mörg kvöld þeir komu. Nokkrir komu þó því nær hvert starfskvöld, aðrir að eins 6—8 kvöld. — Alls voru unnir 172 munir, þar á meðal saumakörfur á fótum, blómastæði, nótnastæði o. fl. eigu- legir munir. í alla fætur undir slíka muni var notað ís- lenskt birki, er reyndist til þess einkar hentugt. — Að afstöðnu námskeiðinu var haldin sýning á mununum, og sást þá glögt, að Sigurður hafði bygt rækilega ofan á þann grundvöll, er hann hlaut á námskeiðinu 1923, því þarna sáust fjölbreyttari gerðir en á hinni fyrri sýningu. Hafði Sigurður keypt sjer bók, er hafði gefið honum nýjar fyrirmyndir, sem hann hafði svo notfært sjer og kent öðrum. — Get jeg þessa hjer, til þess að sýna áhuga og dugnað Sigurðar í þessu efni, því þessi störf þarf hann að rækja í hvíldartímum sínum, sem þó eru af skornum skamti, því hann þarf að verja kröftum sínum til þess að ala önn fyrir stóru heimili. En Sigurður lætur ekki lenda við það eitt að tala um að hin upprennandi kynslóð þurfi að læra að nota tímann vel, þurfi að læra, að »holt er heima hvað« og veglegra sje að skreyta hý-

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.