Hlín


Hlín - 01.01.1925, Side 47

Hlín - 01.01.1925, Side 47
45 tiiin Verðlaunasamkepni Hlínar 1924. Lesendur »Hlínar« mun reka minni til, að á s.l. hausti hjet ritið verðlaunum (1. og 2.) fyrir best gerða sokka, vetlinga og illeppa.* — Úr flestum sýslum landsins voru sendir munir (milli 50 og 60) í samkepni þessa, sumir mjög vel gerðir og smekklegir. Parna komu fram á sjón- arsviðið ágætir framleiðendur, áður óþektir, og mikil til- breytni í lit, gerð og lögun á plöggunum, mátti því margt af þessu læra. Konurnar, sem fengnar voru til að dæma verðlaunin, voru frú Steinunn Frímannsdóttir frá Akureyri og frú Guðrún Pjetursdóttir (frá Engéy), Reykjavík. Báðar eru þessar konur ágætar tókonur. — Munirnir voru tölusettir meðan á dómnum stóð, en nöfn engin. — Pessar konur hlutu verðlaunin: Fyrir sokka: 1. verðlaun (25.00) Freyja Jónsdóttir, Hof- görðum, Snæfellsnessýslu. Handprjónaðir sokkar. 2. verð- laun (15.00) Puríður Jónsdóttir, Sigurðarstöðum, Bárðar- dal, S.-Ringeyjarsýslu. Vjelprjónaðir sportsokkar. Fyrir vetlinga: 1. verðlaun (25.00) Guðrún Ólafsdóttir, Vatnsskarðshólum í Mýrdal, V.-Skaftafellssýslu. Kven- belgvetlingar. 2. verðlaun (15.00) Steinunn Eyjólfsdóttir, Hvoli í Mýrdal, V.-Skaftafellssýslu (14 ára). Tvíbandaðir kvenbelgvetlingar. Fyrir illeppa: 1. verðlaun (10.00) Guðrún Ólafsdóttir, Vatnsskarðshólum, Mýrdal, V.-Skaftafellssýslu. Rósaleppar. 2. verðlaun (6.00) Pórdís Guttormsdóttir, Ketilsstöðum á Völlum, Múlaþingi. Rósabarðar, slingdir. Það er athugavert, að verðlaun voru veitt í alla fjórð- unga landsins. Árið 1925 heitir íHIhu verðlaunum fyrir: * íslensk kona, Laufey Friðriksdóttir Oberman, fylkisstjórafrú á Sumatra, sendi >Hlín« 100.00, sem mátti verja til heimilisiönaðar- verðlauna. — Hafi hún bestu þökk fyrir.

x

Hlín

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.