Hlín


Hlín - 01.01.1925, Page 52

Hlín - 01.01.1925, Page 52
50 Hlln að eða farið í leiki, einkum ef gestir voru kömnir, séhi oft bar við. — Þeir sem jeg hefi síðar hitt, af þeim, sem voru í vist hjá þessum hjónum, telja sig hafa notið þar bestra daga í hjúastöðu, mest vegna þess hvað heimilið var frjálst og glatt. — Jeg minnist hjer á æskuheimili Ásrúnar af því að jeg hygg, að það hafi átt mikinn þátt í, að gera hana að þeirri ágætiskonu, er hún síðar reynd- ist sem húsmóðir, eiginkona og móðir. Ásrún giftist Haraldi Sigurjónssyni Jónssonar á Einars- stöðum og Margrjetar Ingjaldsdóttur. Voru þau og af góðum ættum komin. Haraldur var fæddur 29. okt. 1853. Haraldur og Ásrún bjuggu allan búskap sinn á Einars- stöðum í Reykjadal, í Ringeyjarsýslu, nema fyrstu tvö árin, er þau voru í Kvígindisdal. — Einarsstaðir er stór jörð og góð. Bjuggu þau hjón þar stóru búi og rausnar- samlegu. Höfðu þau jafnan margt hjúa og var einna mestur stórbýlisbragur á Einarsstöðum í tíð þeirra, eftir því sem gerðist þar um sveitir, enda var þá eigi yfir gengin sú breytingaalda, sem hefir liðað flest stórbýli landsins sundur í einyrkja-hokur. Haraldur var hinn mesti fjörmaður og gleðimaður, prýðisvel gefinn, sjálfmentaóur. Hann var viðræðugóður, spaugsamur og lipur i umgengni við hjú sín. Ásrún var og jafnan glöð og góð í viðmóti á hverju sem gekk. Hún átti í fari sínu og framkomu óvenjurhikið af móðurinnileik og jafnframt móðurvaldi, sem fylti heimilið hlýju trausti. Pau hjón voru því mjög vinsæl af hjúum sínum og varð gott til hjúa. Yfirburðir Ásrúnar lágu í tveimur þáttum skapgerðar hennar. Hún átti svo mikið af trúnaðartrausti, að hún gat mætt þungum hörmum með bros á vörum, og hún átti svo hlýtt hjarta, að hún gat með valdi samúðarinnar og kærleikans fylkt um sig öllu sfnu heimilisfólki. Ress vegna lifir hún enn í minningu fólksins, sem ein af fremstu og virðingarverðustu húsmæðrum. Pað var ekki hin ytri sjón, persóna Ásrúnar, sem dró

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.