Hlín


Hlín - 01.01.1925, Page 53

Hlín - 01.01.1925, Page 53
51 HUn inann að sjer, því hún var alls ekki fríð kona, lág og ekki vel vaxin, augu veik og andlitið þreytulegt, enda var hún ein af þeim, sem í rauninni gat sagt, að hún sæi aldrei út yfir það sem þurfti að gera. Kom víst oft- ast svo til dyra sem hún var klædd frá önnunum, ekki fáguð eða funsuð til. En gestirnir biðu ekki lengi þar til þeir fundu hvað fyrir var. — Pað var ánægja þeim glöðu og huggun þeim hryggu að eiga orðastað við Ásrúnu. Þá sáu menn, ef í augu hennar var litið, hvað það var, sem dróg menn að henni, svo okkur fanst hún fallegri en þær »fríðu«. — F*að var þetta sólskin og hug- arhlýja, sem skildi svo góða mynd eftir í huga manns, þó hún sýndist ekki fögur í fyrsta viðliti. Þau hjón eignuðust 8 börn, 4 þeirra dóu í æsku, en ein dóttir, Anna, dó frá manni og 2 ungum dætrum árið 1921. Jón sonur þeirra hjóna býr á Einarsstöðum, Aðal- björg og Einar eru ógift, hún á beima á Einarsst., en hann í Ameríku. Ásrún misti mann sinn 19. apríl 1906 og bjó sem ekkja með börnum sínum um 10 ára skeið. — Hún andaðist á Einarsstöðum 13. júlí 1919. V. og K. * Þau hjón, Ásrún og Haraldur, bjuggu stóru búi á Einarsst. og höfðu um sig margt manna, 4 vinnumenn og jafnmargar vinnukonur, auk þess unglinga og skyldu- lið allmargt. Athafnir voru þá miklar á heimilinu, bæði innan húss og utan. Tóskaparvinna mikil. Heimilisfólkið alt klætt með heimagerðum dúkum óg annari tóvöru. — Haraldur var smiður ágætur og hafði í mörgu að sýsla, utan bæjar og utan heimilis. * Jeg get ekki stilt mig um að taka lijer upp, samhliða minníngar- orðum frá vinkonum Ásrúnar, ummæli vinar. hennar sem þekti hana vel, bæði af því að þau eru rituð af kærleika og skilningi og af því að þau lýsa Ásrúnu sál. og heimili hennar frá sjerstöku sjón- armiði. Ritstj: 4*

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.