Hlín


Hlín - 01.01.1925, Side 66

Hlín - 01.01.1925, Side 66
64 Hlin íslendingar þurfa fleiri þessháttar samkvæmi. Peir þurfa fjölmennar samkomur og langvarandi — námsskeið, sýn- ingar, hjeraðshátíðir og sæluvikur að hætti Skagfirðinga. Við þurfum meiri samkynni, meiri hugblöndun og meiri samræður um málefni þjóðarinnar. Vjer höfum hjer vakið máls á Sæluviku Skagfirðinga, af því að vjer teljum hana harla merkilegan og eftirbreytnisverðan hjeraðshátt. Önn- ur hjeruð landsins eiga að taka hann upp. Hvenær sem hjeruðin eignast góða menn, myndu slík almenn mót verða þeim eins og opin leið að hugum fólksins. Pau mót hlytu að verða menningarstofnun í hverju hjeraði. „Sœluvika“ er vel valið heiti. Allmjög þykir mönnum bresta á sáelu í lífinu. Heldur þykir lífið í íslenskum sveitum daprast. Mestu skiftir jafnan að vel sje hagnýtt það, sem völ er á. Mannfundir geta átt mikinn þátt í að auka birtu í lífinu og svifta af hugum manna viðjum vana og hversdagsdeyfðar. Minningar frá þvílíkum leiðamótum almennings geta orðið sterkar, örfandi og sælar. Nafnval Skagfirðinga er ekki út í hött. Að baki þess liggja merki- leg lífssannindi. Öll hjeruð landsins þurfa að eignast sínar sæluvikur á vetrum og sœludaga á vorin á hjeraðs- mótum undir berum himni. „Dagur.“ Sölvahellir, Fyrir skömmu var jeg á ferð um Þingeyjarsýslu. Leið mín lá yfir brú þá sem er á Skjálfandafljóti, lítið eitt fyrir neðan Goðafoss. Fellur fljótið þar í þröngum gljúfrum og hefir því orðið furðu auðvelt að brúa þennan geig- vænlega farartálma, sem um langan aldur var svo örðugur

x

Hlín

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.