Hlín - 01.01.1925, Page 78
76
Hlín
kringumstæður hafi í seinni tíð hamlað að nokkru. — En svo verða
það spunavjelarnar sem lyfta undir, að vefstólarnir taki aftur al-
varlega tii starfa, þeir eru nokkuð víða til á heimilunum, en engir
með hraðskyttuslagborði.
Nú hefir smiður hjer á Hjeraði, Halldór Gutt-
f jo s a s- ormsson á Arnheiðarstöðum, smíðað 15 þráða
je er spunavjel, sem líkar mjög vel við. — Stendur
’ ' víst til að hann smíði aðra í sumar fyrir heimili
á Völlunum. Við þurfum líklega ekki að kaupa vjelarnar að hjeðan af.
Guðmundur Guðmundsson í Berufirði í Suður-Múlasýslu hefir og
smíðað spunavjel á þessu ári.
Nú ætla hrepparnir að kosta hjúkrunarkonuna að mestu. — Kven-
fjeiögin leggja líklega eitthvað dálítið fram. — Pau eru búin að gera
það sem mest er um vert, sem var að byrja á fyrirtækinu.
Eftir að Halldóra Bjarnadóttir kennari fór fyrir-
ra ívenfjelóg- iestraferð sína hjer um Suðurland vorið 1922,
um i hy.syslu. vom Sf0fnug kvenfjelög í sumum sveitum með
svipuðu starfssviði og stefnu sem norðlensku kvenfjelögin. Hjer skal
lítið eitt sagt frá tveimur þeirra.
Kvenfjelag Fljótshlíðar starfar með talsverðu fjöri. Það hafði sýn-
ingu á heimilisiðnaði 1923 og mun í ráði að hafa aðra i vor, auk
þess hefir það haldið hlutaveltu og nokkrar skemtisamkomur. í vetur
hafði það fjölsótta skemtun með jólatrje, fyrirlestri og öðrum fagn-
aði. Auk þessa hafa konurnar aflað fjelaginu tekna með þvi að gefa
alt til veitinganna á samkomum fjelagsins, en láta það sem inn
hefir komið renna í fjelagssjóð.
Kvenfjelag Rangárvalla á nokkuð örðugra uppdráttar vegna þess
hve þar er strjálbygt og samgöngur því erfiðar. Það hefir starfað
líkt og áðurnefnt fjelag, og auk þess hafa konur þar skotið saman
fatnaði handa bágstöddum heimilum. — Tekjum sínum hafa þessi
fjelög nær því eingöngu varið til líknarstarfsemi, og er það hið
ákjósanlegasta starfssvið fyrir kvenfjelögin. Það væri t. d. hin mesta
þörf á, eins og nú er ástatt með vinnukraft á mörguin heimilum um
vetrartímann, að í hverri sýslu væri nokkrum æfðum hjúkrunarkonum
á að skipa. Það væri verkefni fyrir kvenfjelögin að gangast fyrir því.
En auk þess sem hjer er drepið á, er það eitt, sem öll kvenfjelög
gera óafvitandi, og það er einmitt það sem mest er um vert: Þau
eyða kulda og skilningsleysi, en skapa samúð og skilning og gefa
konunum kost á að segja frá reynslu sinni í ýmsum greinum og
ræða áhugamál sín.