Hlín - 01.01.1925, Blaðsíða 80
78
Hllit
ÚrBarðastrand-
arsýslu er
skrifað:
í vetur var hjer prjónanámskeið (vjelprjón). Frú Valgerður öísla-
dóttir frá Mosfelli hjelt það námskeið fyrir Harald Árnason kaupm.
í Reykjavík. Var það vel sótt og sýning hin myndarlegasta að end-
aðri kenslu.
Kvenfjelagið »GIeym mjer ei« á Flatey á
Breiðafirði gekst s.l. vetur fyrir þvi að haldið var
nokkurskonar hjúkrunarnámskeið. Hjeraðslæknir,
Katrín Thoroddsen, hjelt læknisfræðislega fyrir-
lestra og sýndi ýmsar aðferðir við að þrífa og binda um sár og
yfirleitt að hjúkra sjúkum.
— Jeg vona að kandavinnan verði ekki hjeðan
I-r aleyrl er af strykuð út úr skyldunámsgreinum barnaskól-
s njao. ans { vetur hefir svo verið bætt við bursta-
gerð og netabætingu, sem er mjög þýðingarmikið að hafa með í
sjávarplássi eins og þessu.
G.
Jeg ætla að biðja »Hlín« að mæla sem best
með því að kvenfjelögin í sveitunum taki hjúkr-
unarmálin á stefnuskrá sína eða gangist fyrir að
hjúkrunarfjelög verði stofnuð sem víðast. Að
vísu eru það ekki fremur konur en karlar, sem að þessu ættu að
vinna, því það kemur öllum jafnt við, en það er nú svo, að hjúkr-
unarstörfin þarf að læra og það sem best, og konum er betur trú-
andi til að velja góða stúlku til þess náms en körlum svona yfir-
leitt. En hjúkrunarstarfsemin er áreiðanlega ein sú blessunarrikasta
starfsemi, sem konur geta beitt sjer fyrir, og göfugleiki konunnar
kemur sjaldan betur í Ijós en þegar veikindi bera að höndum.
B. K.
Úr N.-Þingeyj-
arsýslu er
skrifað:
u Til minningar um að »Hlín* er 10 ára að ári
’’ in' höfum vjer fastráðið, ef kaupendur vilja leggja
okkur lið, að hafa þann úrgang helmingi stœrri en iiina fyrri, en
verðið hið sama. Þetta getur orðið, ef hver kaupandi vill taka þá
kvöð á sig betta elna ár. að kaupa 2 eintök i stað eine. — Það
er gaman að reyna vinsældir Hlínar á þennan hátt. — Útsölukonur
geri svo vel að láta útgefanda vita um undirtektir kaupenda á
komanda vetri.