Sumargjöfin - 21.04.1927, Blaðsíða 17

Sumargjöfin - 21.04.1927, Blaðsíða 17
S U M A R G J Ö F í N 17 setti það á meðal lærisveinanna og sagði þeim, að hver þeirra, sem ekki væri eins og barn þetta, myndi . aldrei himnaríki hljóta. Um heiminn fer hreyfing, sem leitast við að gjöra sem mest fyrir börnin og veita þeim skiiyrði og mátt til að vera ávalt slik börn, sem Kristur áminnir um. Menn líta með von til hinna snjöll- ustu uppcldisfræðinga, spyrja þá og læra af þeim, og vilja feta , þeirra fótspor í tilraunum sínum og bæta sjálfir við, skapa og fullkomna nýbyrjað verk. Styrjaldirnar ná oss ekki heint, ' en fregnirnar fáum vjcr og beinar og óbein- ar afleiðingar ná til vor þó að afskekt sjeuin. Og fyr iriá rota en dauðrota. Vjer höfum þá kosti og ókosti, sem fylgja þvi að vera litil þjóð. Alt það iila, sem Lil oss slæðist, sýrir fljótl alt það góða, og getur f 1 jótlega borist landshornanna á milli. Margir skólar og skólaheimili og barna- heimili hafa tekið til starfa víðsvegar um heim nú á síðari tímum, með breyttu fyrirkomulagi frá því, sem nú almerit ríkir. Margar þessar tilraunir eru nú unl 30 ára, en nýjar hafa smámsamán bæst við, og eftir stríðið er öllu slíku veitt meiri eftirtekt. Lítilsháttar ætla jeg að leyfa mjer að minnast á þann uppeldisfræðinginn, sem mestum byltingum hefur valdið á skól- um og barnaheimilum, Dr. Maríu Mohtes- sori, enda liklega sá eini þeirra, sem hefur hugsað um stórbæina og börnin þar. Flestir aðrir byrja tilraunir sínar þar sem vel er í sveit komið að fegurð og öðrum kostum. Frú Aðalbjörg Sigurðardóttir á heiður- inn áf því að hafa kynt hana Is- lendingum, fyrst með alþýðufyrírlestri, sem hún flutti á Akureyri sumarið 1918; hann birtist seinna í Skólabl. í ritstjórn- artíð H. Hjörvai’ í 9,, 10. og 12. tölubl. 9. árgangs 1919. í þessum fyrirlestri ger- ir frú Aðalbjörg ítarlega grein fyrir öllu því nýja í uppeldisfræði hennar. I 8. tölu- bl. 12. árg. 1920, skrifar frú Aðalbjörg aftur um M. Montessori sjálfa og út- breiðslu þeirra skóla sein fylgja vilja . sömu stefnu víðsvegar um heim. Eftir að hún hal'ði keypt hin einlold- ustu áhöld, er Montessori notar i smá- barnskólum sínum, hjelt hún fyrirlestur hjer í Peykjavík og sýndi áhöldin og skýrði þau. Dr. M. Montessori er fyrsti kvenlækn- irinn í Ítalíu. Hvernig henni lærðist að feta sig áfram og verða uppeldisfræðing- ur segir hún frá í bókum sínuin. sem þýddar eru á mörg tungumál. Eftir að hún tók embættispróf fjekk hún stöðu við geðveikraspítalann í Róm. Börri, sem voru fáráðlingar eða hálfvitar, voru þar höfð saman við geðvcika fólkið. Fanst henni fljótt, að þessi börn ættu fre'kar að vera meðfæri uppeldisfræðinga en méðalalækna. Fjekk hún því fraingengt, að þau voru aðskilin l'rá þeim geðveiku og tók hún sjálf að sjer að kenna þeim. Við kenslu þessara barna var hiin í tvö ár; þá kom það atvik fyrir, að eitl af hálfvitum hennar tók ágætis- próf inn i æðri skóla og veitlist það mjög Ijett. Og þetta kom svo fyrir hvað eftir annað og fólki fanst það ganga krafta- verki næst. En Montessori skildi að hraustu börnin á hinum lögskipuðu skól- um gætu lcomist lengra, ef rjettilega væri að farið. Hún tók nii „til óspiltra málanna og las uppeldisfræði og barnasálarfræði i 7 ár í Róm og að þeim loknum var bún setl yfir l(i smábarnaskóla i allra fátæk- asta hverfi borgarinnar. Hafði mannvin- ur nokkur keypt þar hcil hverfi og lagað þar alt og umbreytt, svo að hver einstök ibúð var snotur, ódýr og vistleg og hverj-

x

Sumargjöfin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sumargjöfin
https://timarit.is/publication/613

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.