Hlín - 01.01.1942, Page 7
Frjettir
írá Kveníjelagasamböndum.
Aðalstarfsemi kvenfjelagasambandanna víðsvegar um
iandið hefur alt frá stofnun þeirra að miklu leyti verið
í því innifalin að stuðla að því, að konur gætu átt kost
á aukinni verklegri mentun.
Margar konur, miðaldra og eldri, harma það mjög,
hve þeim veittist erfitt og hve fá tækifæri þær áttu til
að afla sjer algengrar verklegrar mentunar, sem þær
höfðu svo brýna þörf fyrir í lífi sínu síðar meir. — Þær
skilja því vel þarfir og þrár ungu stúlknanna til auk-
innar mentunar og vilja mikið á sig leggja að ljetta undir
með þeim í baráttu þeirra.
Kvennasamböndin hafa, samkvæmt þessum hugsunar-
hætti, unnið að því af alefli, að húsmæðraskólar kæmust
upp sem víðast og orðið mikið ágengt. Þau hafa og safn-
að talsverðu fje til skólanna. — Valdhafarnir hafa í flest-
um tilfellum orðið vel við kröfum kvennanna, og taka
nú í nýendurbættum lögum liúsmæðraskólanna fult til-
lit til afskifta þeirra um þessi mál. — I lögunum segir
svo: „Nú leggja kvenfjelög og kvenfjelagasambönd fram
fje til stofnkostnaðar og er þá skylt að fela Jreim tilnefn-
ing svo margra skólanefndarmanna sem ráðherra úr-
skurðar.*
Kvennasamböndin, sem hafa meira og minna stutt að
stofnun húsmæðraskólanna hvert á sínum stað, halda að
sjálfsögðu áfram að standa í lífrænu sambandi við sinn
* Hvcrgi hefur þcssu alriði verið framfylgt jafnákveðið og t Hús-
mæðraskóla Reykjavíkur, þar er alt skólaráðið (5) skipað konum. Allir
liinir húsmæðraskólarnir hafa 1—2 konur í stjórn sinni,