Hlín - 01.01.1942, Page 18
16
Hlin
þetta er í sumum tilfellum að kenna rökum húsum, en
það dylst þó ekki, að hjer er einnig urn að kenna því
kæruleysi um meðferð verkfæra, sem svo víða á sjer stað
og hefnir sín margfalt í töfum við vinnuna og beinum
fjárútlátum, því að verkfærum, sem illa eru hirt, er
miklu hættara við að brotna en ella. — Takið eftir þessu,
þið sem hafið góð hús og eigið góðar vjelar! — Og hirðu-
söm hönd fær alltaf miklu áorkað, þrátt fyrir vond skil-
yrði. — Hins þarf miklu síður að geta, að hirðing vjel-
anna er sumstaðar með ágætum.
Þess má geta, að það borgar sig ekki að hafa stirðar
og ófullkomnar vjelar við svona nám (mjög litlar vjelar),
einkum á það við, ef nemandinn er starfinu óvanur. —
Ef mikill skortur er á fullkomnum prjónavjelum (jeg
á við vjelar með yfir 80 nálar á hvorri hlið), mun betra
að hafa sýnikenslu.
Dálítið ber á því, að vinnan á námsskeiðunum sje ein-
hliða. — Á sex daga námsskeiði getur hver stúlka ekki
komist yfir að prjóna margar tegundir fatnaðar, en
flestar koma með efni í fleiri en eina peysu. Á þessu
mætti ráða bót með því að konur töluðu sig saman, með
löngum fyrirvara, og skiftu með sjer verkefnum þannig,
að auk þess sem stúlkurnar kæmu með efni í svo sem
eina eða tvær peysur hver, kæmi ein með efni í sokka,
vetlinga og húfu, önnur efni í nærföt, sundbol og trefil
o. s. frv., svo að sem allra flestar tegundir sjeu unnar á
hverju námsskeiði.
Þá kem jeg að því atriði, sem mestu varðar, en það er
efnið, sem unnið er úr. — Nú um tíma hefur fengist nóg
af góðu útlendu garni, sem hefur verið notað talsvert á
þessum námsskeiðum, til mikils ljettis við kensluna. —
Um það er í sjálfu sjer alt gott að segja, en hinsvegar
verða víst ekki skiftar skoðanir um það, að slíkt efni
getum við ekki treyst á. — í fyrsta lagi er það ekki alltaf
fáanlegt, í öðru lagi dýrt og í þriðja lagi ber okkur að