Hlín - 01.01.1942, Page 21
Hlin
19
í janúarbyrjun hófst námsskeið á Skógarströnd. Það
var haft á tveim stöðum í sveitinni: Breiðabólsstað og
Klungurbrekku. — 10 nemendur tóku þátt í því, og
fengu 5 tilsögn í vefnaði en 5 í saumum. — Tveir vef-
stólar voru notaðir og ein grind, sem treflar voru ofnir
í. — Þetta námsskeið stóð til febrúarbyrjunar, og átti
þá að halda áfram og kenna vefnað í næstu sveit: Hörðu-
dal í Dalasýslu, en vegna veikinda fjell sú kensla niður.
Námsskeið byrjuðu ekki aftur fyr en í aprílmánuði
og þá með saumanámskeiði á Hörðubóli í Miðdölum.
Urðu þar 9 þátttakendur og starfað til 10. maí. — Eftir
þann tíma ferðaðist jeg um Kolbeinsstaðahrepp í
Hnappadalssýslu og veitti tilsögn í garðyrkju. — Kom jeg
á 10 bæi í hreppnum og var allsstaðar vel tekið. — Jeg
hafði áður skrifað leiðbeiningar um vermireiti og með-
ferð þeirra, og sent heim á bæina. Þeir höfðu verið búnir
til á 8 stöðum og virtist almennur áhugi á aukinni mat-
jurtarækt.
Síðan var haldin skemsta leið, yfir svokallaða Fossa, að
Álfatröðum í Hörðudal. — Þar var veitt tilsögn í vefn-
aði, og störfum síðan lokið um 14. júní.
Á námsskeiðum þessum var unnið 7 stundir daglega,
auk þess sem sniðið var. — Allsstaðar voru mest saumuð
kven- og drengjaföt, og var áhersla lögð á að nýta gamlar
flíkur, sníða upp og snúa. — Ennfremur var kent hand-
prjón allskonar og hekl og lítilsháttar útsaumur. — Auk
þess voru gefnar uppskriftir viðvíkjandi hreinlæti, kölk-
un, málningu, heimalitun, ýms húsráð o. fl. — Vefnaðar-
uppskriftir fengu þær, sem ófu.
Konur og stúlkur gengu að heiman, þar sem því varð
við komið, en hjeldu til annars annaðhvort á næstu bæj-
um eða á staðnum sjálfum. — Þær, sem ekki gátu verið
að heiman nema stuttan tíma, fengu að vera viku eða
hálfan mánuð eftir ástæðum, en sumar skiftust á og
komu annanhvorn dag. — Urðu konurnar margar að
2*