Hlín - 01.01.1942, Side 35
Hlin
33
eða meiri? — Eða hvar liafa konur borið slíkt geð í
brjósti? — Það er óþarfi að fara í mannjöfnuð í þessu
máli, því nöfn þessara munu uppi meðan heimur stend-
ur, en þessara búning og siðum viljið þjer þó afneita, því
get jeg ekki trúað. — Það hefði verið sök sjer hefði það
verið eitthvað ljótt, og mjer liggur við að segja, að þó það
hefði verið ljótt, þá hefði það getað helgast af því að þess-
ar báru það. — En nú er ekki um það að tala í þessu efni.
— Látið því faldinn ættmæðra yðar vera yðar heiðurs-
merki, af því að þær báru liann á undan yður á höfðum
sjer, sem sigruðu flestar konur með vitsmunum, trygð,
kurteisi og skörungsskap. En gætið yðar, ef þjer ætlið að
kasta honum, að þjer ekki kastið um leið þjóðrækni,
trygð og skörungsskap hinna fornu kvenna“.
Svo mörg eru þau orð Sigurðar rnálara, þess mæta
manns.
Síra Matthías Jochumsson segir í líkræðunni eftir Sig-
urð:,
„Hinn tignarlegi kvenbúningur, borinn af íslands
sönnu dóttur, er sjálfur best kjörið minnismerki höfund-
arins hreinu og fögru sálar“. — Og hann segir ennfremur:
„Ekkert ólag, ekkert ljótt, ekkert ósatt, ekkert ófrjálst gat
hann þolað".
„íslensk ull“, Suðurgötu 22, Reykjavík.
Skrifstofan „íslensk ull“ liefir aðsetur sitt í Suðurgötu
22, Reykjavík. Vinnutími alt árið er frá því kl. 10 að
morgni til kl. 6 að kvöldi. — Afgreiðsla og móttaka á vör-
um er kl. 2—5 alla virka daga, nema laugardaga. — Utan-
bæjarfólk getur og fengið afgreiðslu á öðrum tímum dags-
ins eftir samkomulagi. — Á skrifstofunni vinna tvær
stúlkur með forstöðukonunum. — Vjelprjónanámskeið
var haldið í maí-mánuði og tóku þátt í því bæði innan-
3