Hlín - 01.01.1942, Page 44
42
Hlin
áhuga fyrir að vinnustofan komist upp. Hefur hjúkrunar-
konan gefið mjer upplýsingar um vinnustofur á Englandi
og víðar. Hefur þar orðið hinn besti árangur af þessari
starfsemi. Þar eru munir, sem sjúklingarnir vinna, seldir
og er það mjög mikill fjárhagslegur styrkur fyrir þá og
auk þess sjerstaklega mikil ánægja.
Hjer við Kristneshæli er til dálítið fje, sém nota má í
þessu skyni. Ágæt eyfirsk kona gaf 2000 krónur og sjúkl-
in'gur, sem andaðist á hælinu, gaf eigur sínar til vinnu-
stofu.
Hefur yfirlæknirinn hugsað sjer að taka einar 2 stofur
á hælinu, ef mögulegt er, til þess að hægt sje að byrja sem
fyrst. — En nú vantar efni og áhöld til vinnunnar. —
Ungmennafjelag Saurbæjarhrepps í Eyjafirði hefur lagt
fram 1000 krónur og fleiri ungmennafjelög vona jeg að
styrki þetta málefni.
Og nú vil jeg heita á eyfirskar konur að styrkja þetta
mál. — Jeg veit það af reynslu, að þær eru fórnfúsar, og
það hefur munað um átök þeirra til þess að hrinda áfram
mörgum góðum málefnum.
Sigurlína Sigtryggsdóttir,* Æsustöðum, Eyjafirði.
Það hefur komið til tals, að þörf væri á að eignast nú
þegar þessi áhöld og þetta efni til vinnunnar:
3 vefstóla. — Efni til að vefa úr.
1 saumavjel. — 1 prjónavjel. — Prjónagarn.
Dúka og garn til útsaums.
Smíðaáhöld. — Skóviðgerðartæki.
Efni til teppagerðar. — Bókbandstæki.
* Sigurlína átli mikinn þátt í þvi á sínum tíma að safna fjc til ljós-
lækninga við Akurcyrarspítala, eins og hún líka vann dyggilega fyrir
Heilsuhælismálið, þegar það var á döfinni. — Ritstj.