Hlín - 01.01.1942, Side 106
104
Hlin
eins að endingu þakka kvenfjelögunum, sem að „Árdísi“
standa, fyrir ötulan stuðning Betel til handa á liðnum
árum, og vona að stofnunin megi verðskulda áframhald-
andi vináttu og stuðning.
(Ársritið „Árdís", 8. árg.)
Úr Ölfusi.
Kvenfjelagið „Bergþóra“ í Ölfushreppi í Árnessýslu
var stofnað 6. júní 1927. — í 2. grein fjelagslaganna er svo
að orði komist um markmið fjelagsstarfsins:
„Tilgangur fjelagsins er: Að glæða samvinnu og samúð
milli fjelagskvenna og auka heimilisiðnaðinn með bætt-
um vinnuaðferðum, viðhalda því, sem þjóðin á sjálf-
stætt á heimilunum og byggja það upp, að styrkja þá
starfsemi, er gefi uppvaxandi æskulýð kost á að fá sem
fjölbreyttasta fræðslu heima í sveitinni, bæði andlega og
verklega, að efla bindindi á vín og tóbak með því að
neyta þess ekki og hvetja unglingana til að forðast það“.
Skal nú lýst í stórum dráttum starfsemi fjelagsins
nokkur undanfarin ár samkvæmt þeim bestu heimildum,
er mjer hafa borist í hendur, en sjálfur hef jeg ekki átt
kost á að kynnast störfum þess nema í rúmt ár.
Á þrennan hátt virðist fjelagið sjerstaklega hafa orðið
til góðs innan sveitar sinnar, auk hinna smærri sigra
sinna, sem allir miða í rjetta átt. — í fyrsta lagi hefur því
tekist að efla heimilisiðnaðinn stórlega, í öðru lagi hafa
þau kynni, er starfsemi þess hafa fylgt, stuðlað að auknum
samhug og fjelagslegum þroska og í þriðja lagi hefur
fjelagið af fremsta megni unnið að líknarmálum, og er
það að sumu leyti afleiðing þess, sem síðast var nefnt. —
Fyrstu tvö starfsárin gáfu konur fjelaginu nokkuð af ull,
sem síðan var prjónað og ofið úr, og var sumt af þeim