Hlín - 01.01.1942, Page 141
Hlín
139
hverjum vetri í 7 vikur. Halla á Fossi er kennarinn. — Þó fátt sje
nú um ungar stúlkur í sveitinni minni, eins og víðar, þá eru þessi
námsskeið fullskipuð. — Það er mest kendur karlmannsfata-
saumur og venjulega saumaðir um 20 fatnaðir á hverju náms-
skeiði. — Stúlkur hafa sótt utan úr Skaftártungu, austan úr Ör-
æfum og nú síðast voru 2 austan af Mýrum, Au.-Skaft. — Stúlk-
urnar hafa jafnan verið mjög duglegar og ástundunarsamar.
Við höfum 2—3 skemtanir á ári og höfum altaf töluverðan á-
góða af þeim. Okkar skemtanir þykja góðar, karlmennirnir hafa
sótt þær vel. Líka höfum við kartöflugarð, sem við hugsum um
og gefur hann okkur árlega nokkrar tekjur. Yfirleitt hefur okkur
búnast vel og við höfum verið heppnar. — A milli jóla og nýárs
höfum við jólatrje fyrir börn og þeirra venslafólk og gamalt fólk.
— Fyrir 5 árum keyptum við ágæta prjónavjel, sem er tíma og
tíma hjá okkur til skiftis, og eru það ómetanleg þægindi. Og nú
erum við búnar að festa kaup í spunvjel eftir þann ágæta vjela-
smið, Jón Gestsson í Villingaholti í Flóa, og fáum hana í vor. Hún
verður höfð kyr í sama stað, en ekki flutt, jeg hlakka til að spinna
á hana. — Svo á fjelagið hluta í veitingaskúr, sem er eins og stór
stofa, þar höfum við okkar fundi í birtu og hlýju. I lok hvers
fundar drekkum við kaffi, þá er glatt á hjalla. — Auk þess, sem
jeg hef talið upp, á fjelagið dálitla peninga, olíumaskínu, og kaffi-
áhöld og 60 króna rafplötu, sem er notuð á námsskeiðunum að
hita pressujárnin á. — Næsta stigið er nú fyrir okkur að fá góðan
tvíbreiðan vefstól, ef þeir fást þá nú á tímum.
Kvenfjelagið „Björk“ í Kolbeinsstaðahreppi er stofnað 1. nóv.
1941. Það hefur starfrækt spunavjel í vetur, sem búnaðarfjelag
hreppsins afhenti fjelaginu að gjöf.
Samband borgfirskra kvenna hafði 2 garðyrkjukonur starfandi
í 4—5 sveitum 6—7 vikna tíma hvor sumarið 1941. (Hefur eina
1942). — Sambandið styrkir ennfremur garðyrkju í kauptún-
unum.
Úr Árnessýslu er skrifað veturinn 1942: — Nú er verið að vefa
á 4 bæjum hjer í sveitinni, og hef jeg hjálpað þar til, og ef jeg er
ekki að vefa á minn vefstól, þá lána jeg hann, það eru þrír búnir
að vefa í honum í vetur. — Það sem ofið er, er mest ábreiður,
veggreflar og gólfrenningar. — Það má heita að ofnar ábreiður
sjeu nú yfir hverju rúmi í sveitinni. — Þrjár 10 þráða spunavjel-