Melkorka - 01.05.1944, Page 7
ísland ögrurn skorið ...
lofti gleði og hrifningar, þegar ísland steig sín
fyrstu spor sem lýðveldi fram á sjónarsvið sög-
unnar. Á slíkum stundum hlýtur hver þjóð að
hafa „eina sál“.
Og íslendingar munu á þessurn sögulegu
tímamótum ganga óskiptir að kjörborðinu. Þeir
munu sýna komandi kynslóðum og heiminum
umhverfis skilning sinn og frelsisvilja og jafn-
framt þakklæti til þeirra manna, sem aldrei hop-
uðu og lögðu fram krafta sína til þess, að við
mættum lifa þessa stund, þegar margra alda
draumur er að rætast.
Konur hafa ekki sem einstaklingar látið mik-
ið frá sér heyra hingað til í þessu máli í blöð-
um og tímaritum, en ýms félagssamtök kvenna
hafa rætt málið innan vébanda sinna og hafa
lýst yfir einróma fylgi sínu við lýðveldisstofn-
unina 17. júní.
Andi Grundar-Helgu og Ólafar ríku mun enn
einu sinni hvetja og eggja, ekki til hefnda og
mannvíga, heldur til allsherjar sóknar á kjör-
stað eftir 20. maí. Og á þeirri stund eiga allar
íslenzkar konur eina sál.
Heimilisstörf og hagfræði
Ejtir Rannveigu Kristjánsdóttur
Við ákveðna þjóðfélagshætti á ákveðnum
tíma ríkja ýms fastákveðin lögmál um þróun og
hrörnun atvinnuhátta vorra. Þessi lögmáls-
bundna framrás á það svo til að skapa slíkar
andstæður innan hins ríkjandi skipulags, að af
því hlýzt algjört öngþveiti, sem í bezta falli end-
ar með gjörbyltingu þjóðskipulagsins og sam-
ræming þess við atvinnuhættina, en staðnæmist í
versta falli um lengri hríð fyrir hugvitssamar
uppfinningar afturhaldsaflanna við ýmsar smá-
bætur.
En eins og allar hagar og reyndar húsmæður
vita, kemur hrörnun flíkur sjaldan skýrar í Ijós,
en við þá sjón t. d. að sjá gelgjulegan dreng í
„vinnugalla“, sem nemur við miðjan kálfa, með
fagurlita bót á olnboga, hné og rassi. Móðir
drengsins bætir fatið af mestu nákvæmni, en
blandast þó ekki hugur um, að það getur rifnað
út frá bótinni, og að bráðþroska drengnum henn-
ar myndi hæfa betur nýr „galli“. Hún bætir til
þess að drengurinn ofkælist ekki, en stefnir þó
markvisst að því að útvega honum nýja flík.
Festið ykkur þessa einföldu reglu þjónustu-
bragðanna í huga og notið hana síðan við íhug-
un þjóðfélagsmálanna, þá munuð þið komast
lengra en allir útreiknandi spekingar auðvalds-
fyrirkomulagsins, sem nú eru að bisa við að
reikna út, hvernig hemja megi vaxtarþroska
drengsins — framleiðsluöfl vorra tíma — í hin-
um stagbætta „galla“, sem þj óðfélagsskipan vor
nú er. Þeim kemur aldrei snjallræði húsmóður-
innar í hug — það að sníða og sauma nýjan
„galla“.
Hvað kemur slíkt heimilisstörfunum við, mun-
uð þið segja?
Heimilin eru alltaf í nánu sambandi við allar
aðstæður þjóðfélagsins og skapast af þeim að
mestu leyti. Skilningur á þeim lögmálum, sem
MELKORKA
3