Melkorka - 01.05.1944, Page 22
BREYTT VIÐHORF
Ejtir Aðalbjörgu Sigurðardóttur
Við, sem nú erum miðaldra, eða þar yfir, höf-
um lifað og verið þátttakendur í slíkum breyt-
ingum, bæði á lífsháttum þjóðarinnar og við-
horfi hennar til lífsins, að ekkert líkt mun áður
hafa hent neina eina kynslóð hér á landi. A fá-
um sviðum mun þó hafa orðið meiri breyting,
en á viðhorfinu til barnsins. Skal það rakið
nokkru nánar hér.
Foreldravaldið var mjög mikið. Mér liggur við
að segja, að það hafi verið minnst á mununum
með eign manna á börnum sínum og húsdýrum.
Hvorumtveggja mátti misþyrma, ofbjóða með
vinnu og svelta, án þess að það kæmi nokkrum
við, ef ekki var farið yfir viss takmörk, sem voru
víst oftast nokkuð ógreinileg. Þá var og foreldr-
unum það í sjálfsvald sett, hvern undirbúning
þau veittu börnum sínum undir lífið, framyfir
það, sem prestar heimtuðu til fermingar. Mjög
algengt var að foreldrar vildu stjórna börnum
sinum og ráða yfir þeim langt fram á fullorðins-
ár.
Sem betur fer elska flestir foreldrar börn sín
og vilja koma þeim til manns eftir því, sem þeir
18
hafa vit á. Þess vegna brutust líka margir þeirra
í því að sjá börnum sínum fyrir námi og undir-
búningi undir lífið, langt fram yfir það, sem
heimtað var af þeim. Fyrstu barnaskólarnir hér
á landi, bæði til sveita og sjávar, voru byggðir
á samtökum foreldra um að sjá börnum sínum
fyrir einhverri kennslu, reyndar stundum með
nokkrum styrk frá hálfu hins opinbera, en þó er
barnafræðslan bersýnilega fyrst og fremst talin
einkamál foreldranna.
Með fræðslulögunum frá 1908 verður á þessu
gjörbreyting. Þjóðfélaginu er að byrja að verða
það ljóst, að því getur ekki á sama staðið um
uppfræðslu þegnanna. Skólaskylda er lögleidd á
aldrinum 10—14 ára. Foreldrar geta nú ekki
lengur komizt hjá því að láta börn sin stunda
nám á þessum árum, það er meira að segja hægt
að svifta þá umráðaréttinum yfir börnunum, ef
þeir þrjózkast. Seinna hefur skólaskyldualdurinn
verið lengdur, svo að hann er nú frá 7—14 ára.
Hér er þá kominn til sögunnar nýr aðilji, þjóð-
félagið, sem tekur sér vald yfir uppeldi og upp-
fræðslu barnsins, og að sama skapi hefur vald
MELKORKA