Melkorka - 01.05.1944, Page 28
Kvenréttindakonan gerist sósíalisti
Viðtal við frú Ingibjörgu Benediktsdóttur
I gærkveldi var ég að blaða í
ljóðabókinni þinni „Frá afdal
til Aðalstrætis“, og datt þá í hug
það, sem svo oft hefur hvarflað
að mér áður, er ég hef lesið eitt-
hvað eftir þig í bundnu eða ó-
bundnu máli: Hvers vegna ertu
svona mikil kvenréttindakona,
meiri en flestar aðrar?
Ég er víst fædd þannig, og ef
ég er meiri kvenréttindakona en
aðrar, verður fremur að telja
það hinum til lasts en mér til
hróss.
1 uppvexti mínum var ég oft
að hugsa um kjör vinnukvenn-
anna. Vinnutíminn tók aldrei
enda, og þær máttu aldrei um
frjálst höfuð strjúka. Nú er það ekki síður ein-
yrkjahúsmóðirin, sem á samúð mína, því að erf-
iði hennar er sízt minna. Aftur og aftur braut ég
heilann um stöðu konunnar og ég fann enga
lausn, jafnvel þó að hún fengi aðgang að skólum,
kosningarétt og kjörgengi, þá urðu alltaf hin ó-
teljandi smáatriði daglega lífsins til þess að
byrgja henni sýn og draga úr áhuga hennar.
Mér fannst alltaf óeðlilegt, að konan ekki gifti
sig og eignaðist heimili, en ef hún gerði það, var
hún undir eins fjötruð innan fjögurra veggja,
og hafði oft lítið annað en skapraun af fyrri
áhugamálum sínum og lærdómi.
Já, þú varst kennslukona. Hvers vegna hætt-
irðu því?
Ég rak mig þá á eina af hinum heimskulegu
röksemdafærslum hins borgaralega þjóðfélags,
þess efnis, að bæði hjónin mættu ekki vinna
launað starf við sömu stofnun. Við kenndum þá
bæði hjónin við barnaskólann á
Akureyri og ég varð að hætta.
Voru konurnar þér ekki hlið-
hollar ?
Það var nú síður en svo. —
Þær voru ennþá skilningssljórri
í þessu máli, og eina konan sem
í skólanefndinni var, var allra
harðsvíruðust á móti því, að ég
fengi að kenna. Gift kona á Ak-
ureyri lét sér jafnvel þau orð
um munn fara, „að konur, sem
hefðu slíkan áhuga á skólamál-
um og kennslu, ættu alls ekki að
giftast og eiga börn.“
Á landsfundi kvenna 1926
minntist ég á þetta við Bríet
Bjarnhéðinsdóttur. Var hún fljót
að skilj a það, eins og yfirleitt allt sem laut að rétt-
indum kvenna. — Þar báru síðan tvær giftar
kennslukonur fram tillögu til andmæla gegn því,
að giftum konum væri bolað frá starfi, vegna
þess að þær væru mæður. Tillagan var samþykkt,
en það er þó ekki fyrr en hin allra síðustu ár, að
ég hef fundið nokkurn verulegan skilning á þess-
um málum.
Þú hefur áreiðanlega fengið þinn skerf af skiln-
ingsleysinu á þessu sviði?
Margar konur hafa orðið verr úti í lífsbarátt-
unni, en ekki get ég neitað því, að mér var oft
þungt í skapi meðan á þessu stóð. Ég var þó allt-
af vongóð um að minn málstaður mundi sigra
að lokum, og stundum hef ég róað mig með því
að raula þessa vísu fyrir munni mér:
Brotsjór heimsku og hleypidóma
hamast hvar sem viðnám er.
Ingibjörg Benediktsdóttir
24
MELKORKA