Melkorka - 01.07.1950, Blaðsíða 13

Melkorka - 01.07.1950, Blaðsíða 13
Friðarsókn þjóðanna Heimsfriðami'eyfingm teluv í tlag helming allra íbúa jarðar og eru því volclugustu friðarsamtök sem nokkru sinni hafa verið uppi í heiminum. Menn og konur um all- an heim af öllum stéttum, trúar- flokkum, ólíkustu kynþáttum og stjórnmálaskoðunum hafa skipað sér undir merki friðarins til alls- herjar- og úrslitabaráttu gegn því að kjarnorkuvopnum verði beitt ef heiminum verður enn á ný Friðardúfati. Myndin er gerð af listmdlaranum Picasso og gefin heimsfriöarhreyfingunni hrundið út í styrjöld. Kjarnorkuárásin á Híróshima og Nagasaki í lok síð- ustu styrjaldar eða fyrir réttum fimm árum, þar sem 250 þústindum friðsantra borgara, þar á meðal börn, gamalmenni og konur, var tortímt í einu vetvangi og þúsundir urðu örkumla það sem eftir var ævinnar — er heiminum ennþá í svo fersku minni að heimsfriðar- ltreyfingin hefur fyrst og fremst einbeitt allri starfsemi sinni að þvi að slíkar skelfingar endurtaki sig ekki. Það er engin tilviljun að í þessari baráttu eru kon- urnar alls staðar fremst í fylkingu. Konurnar og mæð- urnar sem lifðu ógn og grintmdaræði sfðustu styrjaldar hrópa nú til kynsystra sinna um allan heim að leggja friðaröflum ntannkynsins lið. Það var á þingi Alþjóðasambands lýðræðissinnaðra kvenna og menntamanna f Parfs 1949 að heimsfriðar- hreyfingin var skipulögð. A þessu þingi voru fulltrúar frá 600 miljónum manna af öllunr þjóðurn, fulltrúar al- þjóðasamtaka verkalýðskvenna og fjölda annarra kven- félagasamtaka ásamt heimsfrægum visindamönnum, kirkjunnar mönnunt og mennta- og listamönnum. I marzmánuði síðastiiðnum var haldin friðarráðstefna í Stokkhóhni mcð, fulltrúum fyrir 1000 miljónir manna, eða fyrir helming alls mannkyns, og var þar samþykkt ávarp svohljóðandi: Vér heimtum skilyrðislaust bann við kjarnorku- vopnum, vopnum til að skelia og myrða með friðsaman almúga. Vér krefjumst þess að komið sé á ströngu alþjóð- legu eftirliti til tryggingar því, að þessu banni verði framfylgt. Vér álítum að hver sú ríkisstjórn, sem fyrst beitir kjarnorkuvopnum gegn hvaða þjóð sem er, fremji brot gegn mannkyninu og geri sig seka um stríðsglæp. Vér heitum á alla góðviljaða menn hvarvetna um helm að undirrita þetta ávarp. Hin mikla alda heimsfriðarhreyfingarinnar hefur nú einnig borizt liingað til íslands. T. d. hefur prestastefna íslands, sambandsþing kennara, Samband sunnlenzkra kvenna og Samband vésturskaftfellskra kvenna, þing Stórstúku Islands og Jónsmessumót sósíalista á Þing- völlum tekið upp merki friðarins hér á landi. Einnig var friðarráðstefna haldin i Reykjavík 29. júní með fulltrúum verklýðsfélaga, kvenna og æskulýðssam- taka, ásamt menntamönnum og listamönnum úr ýms- um greinúm. I ályktun ráðstefnunnar segir meðal ann- ars: „Ráðstefnan lýsir yfir trausti sínu á því að almenn- ingur heimsins sé fær um með samtakamætti sínuni að forða heiminuin frá styrjöld og lieitir á hvern góðvilj- aðan íslending að taka undir friðarákall þjóðanna og s\na friðarvilja sinn i verki ineð því að undirrita Stokk- hólmsávarpið utn bann við notkun kjarnorkuvopna í hernaði til múgmorða á fpðsamri alþýðu." Engin jrjóð á jafnt sem íslendingar líf sitt undir því að friður haldist í heiminum. í kjarnorkustyrjöld getur ísland orðið fremst í víglínu og vofir þá ógnarhætta yf- ir þjóðinni. íslenzkar konur jnunu því einhuga styðja Stokkhólmsávarpið með undirskrift sinni. Þ. V. MELKORKA 39

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.