Valsblaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 22
Ungir Valsarar
storliði i framtiðmm
Ingólfur Slgurðsson leikur knattspyrnu mei 4. flokkl og fékk Lollabikarinn 2005
Ingólfur er tólf ára og hefur æft með Val
síðan hann var um sjö ára gamall. Það
kom ekkert annað til greina en að byrja
að æfa með Val þar sem stóri bróðir hans
(Atli Sigurðsson í 2. flokki) var í Val auk
nokkurra góðra vina hans.
„Ég hef fengið góða hvatningu hjá for-
eldrum mínum, pabbi hefur keyrt okkur
bræðuma á nánast hverju einustu æfingu
og síðan má ekki gleyma mömmu sem
eldar ótrúlega góðan mat ofan í okkur
bræðurna. Stuðningur foreldra er mik-
ilvægur ef maður ætlar að ná langt, hvort
sem það er í námi eða íþróttum.“
- Hvernig gekk ykkur í sumar?
„Okkur í A-liðinu í 5. flokki gekk
ágætlega seinasta sumar, en við vorum
satt best að segja ekkert voðalega meira
heldur en miðlungslið. Við getum þó
spilað frábæran fótbolta sem gaman er að
horfa á. Við fórum á Essómótið og lent-
um í gífurlega erfiðum riðli. Við vorum
óheppnir í mörgum leikjum og var sér-
lega svekkjandi að þurfa að sætta sig við
að lenda í 17. sæti. Hópurinn núna í 4.
flokki er ágætur, við erum með góðan
þjálfara sem er gríðarlega metnaðarfullur
og hef ég fulla trú á að við getunr náð
árangri næsta sumar, ef við leggjum
hart að okkur.“
„Ég get talið upp endalausa leik-
menn sem ég fylgist mikið með eins
og Ronaldinho, Gerrard og
það er einnig gaman að sjá
Messi spila, sem er ungur
leikmaður sem er að
mála hjá Barcelona.
Sá leikmaður mun
láta verulega til
sín taka á næst-
unni og ef hann
heldur áfram
á þeirri braut
sem hann er á
gæti Ronaldinho
þurft að sætta
sig að verma
varamannabekk-
inn oftar en ekki!
Síðan les ég mikið
um gamlar stjömur, eins og t.d. Diego
Maradona, Pele og Michael Jordan. Ég
hef einnig séð nrörg myndbönd af þeim
og er ótrúlegt að horfa á þau.“
- Hvað þarf til að ná langt í fótbolta
eða íþróttum almennt?
„Maður þarf að hafa mikinn sjálfsaga
til að ná langt í íþróttum. Ég tel að það sé
líka mjög mikilvægt að allt sé í lagi í öllu
hjá manni, eins og t.d. að vera ekki með
fólki sem hefur vond áhrif á mann eða
eitthvað slíkt, þetta er allt ein stór keðja
og ef einn hlekkur af keðjunni slitnar er
keðjan ónýt. En það er samt alltaf hægt
að laga keðjuna aftur."
- Hvers vegna fótbolti?
„Eftir að ég byrjaði að spila fótbolta
þegar ég var nýbyrjaður í skóla varð ekki
aftur snúið. Ég byrjaði lélegur en æfði
mig mikið, því ég vildi auðvitað vera
bestur. Mig minnir að fljótt eftir að ég
byrjaði að hafa áhuga á fótbolta, byrj-
aði ég að vinna ýmsa fótboltaleiki og
man ég að ég var alltaf í stígvélum, en
flestir bekkjarbræður mínir í nýjustu og
fínustu fótboltaskónum. Ég hef
æft lítið fleiri íþróttir en
fótbolta, en hef þó prófað
nokkrar íþróttir eins og
frjálsar og handbolta.
Ég fór aðallega
Stoltir feðgar Ingólfnr Sigurðsson ásamt föður sínum, Sigurði Konráðssyni
fyrir utan Valsheimilið með Lollabikarinn eftir uppskeruhátíðina.
snerpuna og sprengikraftinn. Fótbolti er
stór hluti af lífi mínu, mér líður t.d. allt-
af illa þegar ég er að gera eitthvað annað
í frítíma mínunt en að spila fótbolta. Ég
segi þó ekki að fótbolti sé lífið, en það er
allavega stór hluti af því!“
- Hverjir eru þínir framtíðar-
draumar í fótbolta og lífinu almennt?
„Flest allir sem æfa fótbolta vilja vera
meðal þeirra bestu í Evrópu og jafnvel í
heiminum. Ég get alveg viðurkennt það
að ég er engin undantekning í þeim hópi.
Ég vil ná árangri og þó maður sé frá
íslandi er alveg hægt að ná langt. Eins
og til dæmis Eiður Smári Guðjohnsen,
hann spilar með einu af bestu félagslið-
um í heimi og finnst mér liðið spila mun
betur og skemmtilegri fótbolta þegar
Eiður Smári er inni á vellinum. Ég vil
spila fyrir stórlið í framtíðinni og ég læt
það hafa engin áhrif á mig þótt einhverjir
segi við mig að ég geti það aldrei. Ég hef
nokkrum sinnum lent í því og ég ætla að
gera mitt besta til að reyna að láta þá éta
upp orð sín.“
Þekktur Valsari í fjölskyldunni
„Ég held að Dóra Stefánsdóttir sé
stærsti Valsarinn í fjölskyldunni. Hún
er frábær og ég ber mikla virðingu fyrir
henni.
- Hvaða þýðingu hefur það fyrir
þig að hafa fengið Lollabikarinn?
„Það er vissulega góð viðurkenn-
ing að fá Lollabikarinn. Ég hélt að
hann væri bara veittur fyrir 4., 3. og
2. flokk, þannig að þetta kom mér
mikið á óvart. Ég er mjög metn-
aðarfullur og læt ekki hafa nein
áhrif á mig þótt ég hafi unnið
til þessara verðlauna. Ég er
alltaf stoltur þegar ég kem
auga á bikarinn heima, en
ég tek þessu einungis sem
hvatningu.“
- Hver stofnaði Val og
hvenær?
„Það var að sjálfsögðu
sr. Friðrik Friðriksson sem
stofnaði Val, þann 11. maí
1911.“
Valsblaðið 2005