Valsblaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 47
Ferðasaga
Foreldrar og þjálfarar í sólskinsskapi nýttu tímann til sól-
baða íbongóblíðu á Pœjumótinu á Siglufirði.
úrslitum og'loks tryggði 4. flokkur A sér
sæti í undanúrslitum. Fimmta flokki B
gekk mun betur í sólinni en daginn áður
og tryggði sér leiki um 5.-8. sæti. Öðrum
Valsliðum gekk ekki alveg eins vel en
allir skemmtu sér konunglega, bæði leik-
menn, þjálfarar, fararstjórar og fjölmarg-
ir stuðningsmenn úr hópi foreldra sem
hvöttu stelpurnar til dáða. Eftir verkefni
dagsins á fótboltavellinum var haldið
á skemmtilega tónleika á torginu þar
sem mikið var dansað og gaman var að
sjá glaða iðkendur, þjálfara og foreldra
skemmta sér konunglega saman. Það
voru þreyttar stúlkur sem sofnuðu fljótt
að loknum tónleikunum, staðráðnar í því
að gefa allt í úrslitaleikna. Á sunnudegin-
um var leikið til úrslita og spilað um sæti.
Veðrið var þokkalegt. Mikil spenna lá í
lofti meðal allra á Siglufirði enda keppi-
kefli allra liða að ná sem bestum árangri
innan vallar þótt fjölmargt annað skipti
máli í ferðum sem þessum eins og góður
félagsskapur og leikgleði. Sjötti flokkur
A byrjaði á leik við sterkt lið Fylkis og
komst fljótlega yfír 1-0, en skömmu fyrir
hálfleik jöfnuðu Fylkisstúlkur. f seinni
hálfleik sóttu Valsarar ákaft án þess að
takast að skora en á lokamínútunni kom-
ust Fylkisstelpur yfir 2-1 eftir homspymu
og þar við sat. Leikurinn var ákaflega
vel leikinn og sýnir hversu öflugt upp-
byggingarstarf er í kvennaknattspyrnu
hér á landi. Silfur var því staðreynd hjá
okkar stelpum og mega þær vel við una
en um 20 lið kepptu í 6. flokki. Síðar um
sumarið urðu Valsstúlkurnar í 6. flokki
íslandsmeistarar og vom vel að þeim titli
komnar.
í fimmta flokki A léku Valsstelpumar
við Þrótt Reykjavík og lentu 2-0 undir
í fyrri hálfleik. Þær
komu vel einbeittar til
leiks í síðari hálfleik
og náðu með harð-
fylgi að jafna leikinn
2-2 og þar við sat.
Þá var uppkast sem
lenti okkar megin og
fögnuðu stelpumar og
stuðningsmenn ákaf-
lega. Það sama gerð-
ist í úrslitaleiknum á
móti Breiðablik, eftir
jafnan baráttuleik sem
endaði með marka-
lausu jafntefli var
uppkast sem Blikar
unnu og okkar stúlk-
ur sátu eftir með sárt
ennið, en mega þó vel við una að ná silf-
ursæti en 24 lið léku í 5. flokki. Þess má
geta að Blikar urðu síðar um sumarið
fslandsmeistarar í 5. flokki eftir harða
baráttu við Skagastúlkur. B lið Vals vann
síðan örugglega báða sína leiki og endaði
í 5. sæti sem telst gott eftir erfiða byrjun
á mótinu. C liðið endaði í 10. sæti eftir
tvo góða sigra á sunnudeginum og sótti
það lið mjög í sig veðrið eftir því sem
leið á mótið.
í 4. flokki töpuðu Valsstúlkurnar í und-
anúrslitum fyrir Þrótti frá Neskaupstað
í miklum baráttuleik 1-0. Síðan tap-
aðist leikurinn um bronsverðlaun á móti
Breiðablik 1-0 og vom þetta fyrstu tap-
leikir A liðsins í 4. flokki um sumarið.
Stelpurnar mega þó vel við una en um 25
lið kepptu í 4. flokki á mótinu. Síðar um
sumarið tryggðu Valsstúlkumar sé sæti í
Ariðli Í4. flokki.
Að loknum öllum þessum úrslitaleikj-
um var grillveisla fyrir alla keppendur
og verðlaunaafhending. Það voru lúnar
stúlkur sem stigu í rútuna
eða fóru með foreldrum
sínum heim á leið eftir
vel heppnað Pæjumót.
Rútuferðin gekk vel þar
sem áð var í Staðarskála
í hamborgaraveislu
og að Hlíðarenda kom
hópurinn um kl. 11 um
kvöldið. Pæjumótinu var
þar með formlega lokið
og sumar stelpumar voru
strax farnar að tala um
að fara til Siglufjarðar á
næsta Pæjumót að ári.
Myndir og úrslit
og ýmislegt fleira
um Pæjumótið má sjá á slóðinni:
www.simnet.is/ks/paejumot
Ný Valslög
í þessari ferð var mikið sungið af
gömlum og nýjum Valslögum og stelp-
urnar sömdu nýja söngtexta sem sumir
hittu vel í mark og hér verður birt sýn-
ishom af sköpun stelpnanna sem mest fór
fram í rútunni á leið til Siglufjarðar.
Við erum öll Valsarar
já Valsarar, já Valsarar.
Þið eruð öll Valsarar, já Valsarar, já
Valsarar.
Það eru allir Valsarar, inni í sér, já
Valsarar.
Samið við Ramsteinlag
Aumingja ég
UBS, ég skaut óvart útaf.
Aumingja ég.
Það er innkast.
Ó, Valur, Valur
Flottar Valsstelpur
Við erum flottar Valsstelpur,
við vinnum allar telpur í KR,
við erum að fara á Pæjumót á Siglufirði.
Við ætlum að vinna alla leikina fyrir Val.
Fótbolti
í fótbolta er gaman
þar spila liðin saman,
við mölum alltaf alla
því við emm Valsarar.
Við skorum fullt af mörkum
og vinnum leikina.
Við fáum alla titlana
á Pæjumótinu.
Samantekt: Guðni Olgeirsson fararstjóri.
Mikil spenna á hliðarlínunni. Foreldrar, þjálfarar og iðk-
endur fylgjast spennt með gangi mála.
Valsblaðið 2005
47