Valsblaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 81
Ettir Guðmund Guðjónsson
miðað við þann stutta
tíma sem við erum
búnir að vera saman,“
segir Eggert. „Annar
jákvæður hlutur hjá
Val er sá að þar á bæ
er farið að hlúa að
ungiviðinu og það
skilar sér alltaf á
endanum ef maður
vonast til þess að
ná árangri í þessu
sporti. í dag er fullt
af ungum og spræk-
um strákum í Val sem geta átt sér bjarta
framtíð í boltanum ef þeir eru tilbúnir
að leggja þá vinnu á sig sem þarf til að
koma sér á toppinn.“
íslenskir leikmenn í stöðugri fram-
för
Eggerti finnst íslenskir leikmenn vera
í stöðugri framför, enda eru menn nú
famir að æfa töluvert mikið eða fimm til
sex sinnum í viku auk eins eða tveggja
leikja í viku. „Við eigum líka stráka sem
eru komnir í atvinnumennsku sem ætti
að vera góð fyrirmynd fyrir unga og
efnilega leikmenn og sýnir að draum-
urinn um atvinnumennsku er til staðar ef
menn eru duglegir við að æfa, setja sér
markmið og hugsa hátt,“ bætir hann við.
„Varðandi erlenda leikmenn á Islandi er
það alltaf álitamál og sitt sýnist hverjum
í þeim efnum. Eg er reyndar á því að ef
maður vill ná árangri í efstu deild þá væri
betra að geta farið í gegnum 1. deildina
Kanalausa, þannig að íslensku leikmenn-
imir gætu náð sér í meiri reynslu sem
leiðtogar liðsins og bera meiri ábyrgð
á gengi þess í 1. deildinni. Valsmenn
brugðu á það ráð í haust að fá erlendan
leikmann til að hjálpa reynslulitlu liði
að ná sér í meiri reynslu og til að hjálpa
í baráttunni við að komast upp. Svo er
það einnig að sum lið utan af landi verða
hreinlega að hafa erlendan leikmann út
af skorti á mannskap.“ Eggert segir að
seint verði bannað að leyfa erlenda leik-
menn í 1. deild en sú umræða hefur oft
skotið upp kollinum. „Það eru svo mis-
munandi ástæður fyrir því að lið fá sér
erlenda leikmenn. Svo má líka segja að
þeir koma með nýjar víddir inn í þetta hjá
okkur og sýna íslensku strákunum hvem-
ig hægt er að bæta sig og lyfta þannig
íslenskum leik á hærra plan. Okkar bestu
og efnilegustu strákar í dag njóta þess að
hafa spilað með og á móti góðum amer-
ískum leikmönnum sem hafa bætt alhliða
leikinn hér á landi ásamt íslenskum og
evrópskum leikmönnum," bætir hann
við.
Bestu menn landsins
„Að mínu mati eru Jón Arnór Stefánsson,
Jakob Sigurðsson, Logi Gunnarsson,
Hlynur Bæringsson, Sigurður Þorvalds-
son og Pavel Ermolinski bestu leikmenn
íslands í dag og vona ég að ég sé ekki að
gleyma neinum. Þetta eru leikmenn sem
spila í atvinnumennsku en einnig eru
margir góðir leikmenn að gera góða hluti
í háskólum í Bandaríkjunum. Hér heima
eru svo margir strákar sem eru að gera
góða hluti en flest lið eiga orðið þrjá til
fimm efnilega leikmenn sem lofa góðu.“
Sameining íþróttaliða
Spurningin um sameiningar iþróttaliða
hefur oft skotið upp kollinum og sérstak-
lega hér á Reykjavíkursvæðinu þar sem
erfitt hefur reynst að reka öll þau fjöl-
mörgu lið sem á svæðinu eru. Það er ekki
hægt að sleppa Eggerti nema spyrja hann
um sína skoðun á sameiningum íþrótta-
liða. „Eg held að það sé engin spurning
að lið á Reykjavíkursvæðinu ættu að
sameinast í stað þess að vera að bítast um
þessar fáu krónur. Vandamálið er að það
eru allir svo fastir í sínum liðum að menn
sjá ekki hagkvæmnina sem gæti falist
í sameiningu liða. Mín skoðun er sú að
þegar lið ætla að sameinast þá eiga þau
að hafa aðskilda yngri flokka þar sem
menn geta áfram verið harðir stuðnings-
menn sinna liða, en meistaraflokkamir
sem sameinuðu þessi félög ættu að heita
öðru nafni sem allir gætu fylkt sér bakv-
ið. Ég hef aldrei verið hlynntur því að
félög heiti nöfnum beggja lið, það skap-
ar bara pirring og vandræði. Þetta mættu
nánast öll lið á Stór-Reykjavíkursvæðinu
gera og þá væri kannski hægt að setja
meiri peninga í færri en stærri og sterkari
einingar,“ segir hann.
Ragnar Níels Steinsson í skotstöðu.
Fín staða í körfunni hjá Val
Þegar Eggert er spurður að því hvernig
honum finnst staðið að körfuboltanum
í Val hugsar hann sig aðeins um. „Það'
er erfitt að dæma hvernig hlutimir vom
áður en ég kom en það er ljóst að stað-
an er fín í dag. Stjómin er virk og vill
gera vel og það er nokkuð stór hópur af
jákvæðum Valsmönnum sem em tilbúnir
að leggja á sig óeigingjarna vinnu til að
láta hlutina ganga upp. Það er kannski
okkar helsti ókostur í ár að við emm ekki
á neinum heimavelli sem slítur svolítið
í sundur starfið hjá okkur. En á móti er
líka að koma stórt og gott íþróttamann-
virki sem verður skemmtilegt að spila
í á næstu leiktíð og þá vonandi í efstu
deild,“ segir Eggert Maríuson þjálfari
meistaraflokks að lokum.
Eggert Maríusson
þjálfari meist-
araflokks karla í
körfuknattleik.
www.valur.is
Valsblaðið 2005
81