Valsblaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 54
Elísabet Gunnarsdóttir hvetur stelpur í 5.flokki til dáða í hálfleik.
áhrif á félaga sína og sýnt prúðmennsku
gagnvart samherjum sínum og þjálfara,
innan vallar og utan.
Landsbanki íslands kostaði allar hefð-
bundnar viðurkenningar yngri flokkanna
þetta árið. Var Þórey Arnadóttir fulltrúi
bankans sérstakur gestur uppskeruhátíð-
arinnar að þessu sinnu. Var þátttaka
bankans á grundvelli sérstaks samstarfs-
samnings félagsins og bankans. Var
inntak samningsins lauslega kynnt á
hátíðinni og þótti vel til takast. Að mati
unglingaráðs er reynslan af samstarfi við
Landsbankann verðmæt fyrir unglinga-
starf á vegum félagsins.
„Friðriksbikarinn“
A uppskeruhátíð yngri flokkanna 2005
var Friðriksbikarinn veittur í annað sinn.
Um er að ræða viðurkenningu fyrir iðk-
endur í 3. fl. karla og kvenna. Gefandi
Friðriksbikarsins er KB banki við
Hlemm og er bikarinn að sjálfsögðu
kenndur við Sr. Friðrik Friðriksson.
Þorsteinn Olafs útibússtjóri KB Banka
veitti viðurkenninguna, sem er veglegur
farandbikar og annar til eignar og veitt er
árlega til iðkenda í 3. fl. karla og kv. sem
þykja skara framúr í félagsþroska innan
vallar sem utan. I ár hlutu viðurkenn-
inguna þau Ingibjörg Magnúsdóttir og
Ellert Finnbogi Eiríksson. Unglingaráð
færir KB banka sérstakar þakkir við
aðkomuna að þessum verðlaunum sem
eru félaginu til sóma.
Lollabikarinn
Lollabikarinn var að venju veittur á
uppskeruhátíðinni. Að þessu sinni fékk
Ingólfur Sigurðsson leikmaður með 5.
flokki drengja bikarinn. Lollabikarinn er
gefinn af Ellert Sölvasyni „Lolla í Val“
og skal veittur þeim leikmanni yngri
flokka Vals sem þykir hafa skarað fram
úr í knattleikni og tækni.
Dómari ársins
Svanur Gestsson var valinn dómari árs-
ins á uppskeruhátíð knattspyrnudeildar.
Svanur er vel að þeirri viðurkenningu
kominn, hann hefur dæmt ótal leiki í
yngri flokkunum á undanförnum árum
og hægt hefur verið að kalla hann út til
dómaraverkefna nánast hvenær sem er.
Þátttaka yngri flokka í mótum
Valur tók þátt í öllum hefðbundnum
mótum á vegum KSÍ og KRR auk ann-
arra móta sem haldin voru af félögum
vítt og breytt um landið. Arangur í flest-
um flokkum var góður og oft'mjög góður
miðað við fjölda iðkenda.
3. fl. ka. Spilaði til undanúrslita á
Islandsmótsinu eftir að hafa unnið sig
upp úr B-deild árið áður. Flokkurinn
varð einnig Reykjavíkurmeistari og stóð
sig vel í bikarkeppninni.
4. fl. ka. Lék í B- deild íslandsmótsins
og endaði þar í þriðja sæti og hársbreidd
frá sæti í A- deild. Flokkurinn stóð sig
ágætlega í Reykjavíkur- og haustmótum.
5. og 6. fl. ka. Tóku þátt í ýmsum
mótum og var almenn ánægja með ferð-
irnar til Vestmannaeyja í 6. flokki og til
Akureyrar í 5. flokki og var mikil stemn-
ing bæði innan og utan vallar og árangur
var með ágætum. Ekki gekk eins vel á
íslandsmóti í 5. fl. en flokkurinn féll úr
B í C deild í sumar. B lið 6. flokks komst
í úrslitakeppni íslandsmótsins og náði
þar frábærum árangri.
Þá var mikil framför hjá iðkendum í 7.
fl. ka. undir stjórn Benedikts Bóasar
Hinrikssonar og þeirra þriggja þjálfara
sem tóku við af honum. Flokknum gekk
t.d. frábærlega á Skagamótinu.
Því miður var árangur 3. fl. kv. undir
væntingum þetta árið ef horft er til
íslandsmótsins en flokkurinn stóð sig
frábærlega í ýmsum öðrum mótum árs-
ins, varð t.d. Reykjavíkurmeistari og
haustmeistari og vann til bronsverðlauna
á Símamótinu.
Hinn stórefnilegi 7.flokkur kvenna með liluta af verðlaunum sumarsins. Efri röð frá vinstri:
ÞórhHdur Helga Eyþórsdóttir, Mekkín Guðmundsdóttir, Snœdís Logadóttir, Aróra Líf Kerúlfsdóttir,
Anna Snjólaug Valgeirsdóttir. Neðri röð frá vinstri: Nína Gylfadóttir, Málfríður Anna Eiríksdóttir,
Andrea Eir Guðmundsdóttir, Harpa Karen Antonsdóttir, Sigrún Sigurðardóttir, Kristín Ýr Jónsdóttir.
54
Valsblaðið 2005