Valsblaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 76
pfleqn eiga að ICOSjfl StUllll ð
iprottir sem allra lengst
Viðtal við Berg Má Emilsson pjálfara í hörfubolta hjá Val
| r /\
ISPDRTS y h<!
Síðasti leikur Bergs á ferlinum, úrslita-
leikur gegn Snœfelli sem fór 92-88.
Pjálfari og spilandi leikmaður Islands-
og deildarmeistara Vals í 1. deild 2002.
Bergur Már Emilsson hefur árum
saman þjálfað körfubolta hjá Val, allt
frá minnibolta til meistaraflokks og
ber hag körfunnar mjög fyrir brjósti hjá
Val. Hann varð fúslega við þeirri bón
að svara nokkrum spurningum um eigin
íþróttaferil, þjálfun og framtíðarsýn að
Hlíðarenda.
Bergur segir að áhugi sinn á körfunni
hafi byrjað þegar hann fylgdist með
frænda sínum, Birgi Mikaelsyni, sem nú
er þjálfari hjá Valsmönnum, leika and-
stæðinga sína grátt í Hagaskólanum. „Það
var skrýtið fyrir 8 ára Valsara að horfa á
þjálfara sinn Torfa spila á móti frænda
sínum í röndóttum búningi og oft á tíðum
vissi ég ekki hvort ég ætti að klappa eða
baula,“ segir Bergur og brosir.
Bergur segist á yngri árum hafa verið
í öllum boltaíþróttum og að auki í borð-
tennis og skák svo eitthvað sé nefnt.
Skáktímabilið stóð frá 8-12 ára og náði
hann þeim merka árangri að verða skák-
meistari Laugarnesskóla í tvígang 10 og
12 ára gamall. „Ég sá miklu seinna hvað
það voru mikil mistök að steinhætta 12
ára. Handboltaferill minn spannar frá 6.
til 5. flokks, bæði Víkingi og Val, og var
ég svo heppinn að fá að kynnast Magnúsi
Blöndal heitnum. Ég held að andi hans
svífi enn yfir handboltadeildinni og hjá
okkur öllum í Val. Karfan og fótboltinn
voru samt sem áður aðalgreinarnar og
ég þurfti að velja milli 15 ára gamall. Ég
spilaði með Víkingi í fótbolta og afrekaði
það að verða Islandsmeistari og vera val-
inn í U-16 landsliðið 15 ára og spilaði ég
landsleiki með fyrirliða Vals Sigurbirni
Hreiðarsyni stuðbolta með meiru. Arið
eftir stóð ég frammi fyrir því að þurfa
velja hvort ég ætlaði að verða körfu-
boltamaður eða fótboltamaður því Axel
Nikulásson var að hefja metnaðarfullt
verkefni með drengjalandsliðið í körfu.
Valið var reyndar auðvelt því ég' valdi
þá íþrótt sem mér þótti skemmtilegri. Ég
held að það hafi verið einn af hápunkt-
um á mínum ferli að spila 27 landsleiki
á einu ári og enda í 9. sæti í úrslitum U-
16 Evrópukeppninnar í Tyrklandi. Enn
sem komið er hefur ekkert
íslenskt lið náð betri árangri
í Evrópukeppni í körfuknatt-
leik.“
- Hvenær hófstu störf við
þjálfun í körfubolta?
„Ég byrjaði að þjálfa 17 ára
og hef verið að þjálfa síðan.
Ég hef þjálfað alla aldurs-
flokka hjá körfuknattleiks-
deildinni nema drengja-
flokk. Eitt tímabilið þjálfaði
ég hóp 7-10 ára gutta og
meistaraflokksleikmann sem
var í meistaraflokki þegar ég
var að byrja í körfunni 7 ára.
Þetta var mjög skemmtilegt
tímabil. Meistaraflokkur
tryggði sér sæti í úrvalsdeild
með því að vinna deild og
úrslitakeppni og minnibolta
hópurinn stækkaði úr þrem-
ur upp í 35. Margir í þessum
7.flokkur 2004-2005. minniboltahópi eru nú lykil-
76
Valsblaðið 2005