Valsblaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 76

Valsblaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 76
pfleqn eiga að ICOSjfl StUllll ð iprottir sem allra lengst Viðtal við Berg Má Emilsson pjálfara í hörfubolta hjá Val | r /\ ISPDRTS y h<! Síðasti leikur Bergs á ferlinum, úrslita- leikur gegn Snœfelli sem fór 92-88. Pjálfari og spilandi leikmaður Islands- og deildarmeistara Vals í 1. deild 2002. Bergur Már Emilsson hefur árum saman þjálfað körfubolta hjá Val, allt frá minnibolta til meistaraflokks og ber hag körfunnar mjög fyrir brjósti hjá Val. Hann varð fúslega við þeirri bón að svara nokkrum spurningum um eigin íþróttaferil, þjálfun og framtíðarsýn að Hlíðarenda. Bergur segir að áhugi sinn á körfunni hafi byrjað þegar hann fylgdist með frænda sínum, Birgi Mikaelsyni, sem nú er þjálfari hjá Valsmönnum, leika and- stæðinga sína grátt í Hagaskólanum. „Það var skrýtið fyrir 8 ára Valsara að horfa á þjálfara sinn Torfa spila á móti frænda sínum í röndóttum búningi og oft á tíðum vissi ég ekki hvort ég ætti að klappa eða baula,“ segir Bergur og brosir. Bergur segist á yngri árum hafa verið í öllum boltaíþróttum og að auki í borð- tennis og skák svo eitthvað sé nefnt. Skáktímabilið stóð frá 8-12 ára og náði hann þeim merka árangri að verða skák- meistari Laugarnesskóla í tvígang 10 og 12 ára gamall. „Ég sá miklu seinna hvað það voru mikil mistök að steinhætta 12 ára. Handboltaferill minn spannar frá 6. til 5. flokks, bæði Víkingi og Val, og var ég svo heppinn að fá að kynnast Magnúsi Blöndal heitnum. Ég held að andi hans svífi enn yfir handboltadeildinni og hjá okkur öllum í Val. Karfan og fótboltinn voru samt sem áður aðalgreinarnar og ég þurfti að velja milli 15 ára gamall. Ég spilaði með Víkingi í fótbolta og afrekaði það að verða Islandsmeistari og vera val- inn í U-16 landsliðið 15 ára og spilaði ég landsleiki með fyrirliða Vals Sigurbirni Hreiðarsyni stuðbolta með meiru. Arið eftir stóð ég frammi fyrir því að þurfa velja hvort ég ætlaði að verða körfu- boltamaður eða fótboltamaður því Axel Nikulásson var að hefja metnaðarfullt verkefni með drengjalandsliðið í körfu. Valið var reyndar auðvelt því ég' valdi þá íþrótt sem mér þótti skemmtilegri. Ég held að það hafi verið einn af hápunkt- um á mínum ferli að spila 27 landsleiki á einu ári og enda í 9. sæti í úrslitum U- 16 Evrópukeppninnar í Tyrklandi. Enn sem komið er hefur ekkert íslenskt lið náð betri árangri í Evrópukeppni í körfuknatt- leik.“ - Hvenær hófstu störf við þjálfun í körfubolta? „Ég byrjaði að þjálfa 17 ára og hef verið að þjálfa síðan. Ég hef þjálfað alla aldurs- flokka hjá körfuknattleiks- deildinni nema drengja- flokk. Eitt tímabilið þjálfaði ég hóp 7-10 ára gutta og meistaraflokksleikmann sem var í meistaraflokki þegar ég var að byrja í körfunni 7 ára. Þetta var mjög skemmtilegt tímabil. Meistaraflokkur tryggði sér sæti í úrvalsdeild með því að vinna deild og úrslitakeppni og minnibolta hópurinn stækkaði úr þrem- ur upp í 35. Margir í þessum 7.flokkur 2004-2005. minniboltahópi eru nú lykil- 76 Valsblaðið 2005
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.