Valsblaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 27
Starfið er margt
Richmond Pittman leika með liðinu í
vetur. Ari Gunnarson hefur einnig snúið
heim eftir langa fjarveru en hann hefur
leikið með Skallagrími undanfarin ár. Þá
hefur Guðjón Hauksson byrjað aftur, Jón
Þorkell Jónasson kemur frá Grindavík,
Skúli Ingibergur Þórarinsson frá ÍR og
Valtýr Sigurðsson er kominn til baka frá
Ármanni.
Nokkrir leikmenn hafa farið annað.
Aðalsteinn Pálsson hefur skipt yfir í
Breiðablik, Guðmundur Kristjánsson
er farinn í skóla í Bandaríkjunum,
Leifur Steinn Ámason og Steinar Örn
Erlendsson fóru í ÍS. Auk þess hefur
Gjorgji Dzolev farið til Stjömunnar
og leikur þar undir stjóm Birgis
Guðfinnssonar sem þjálfar liðið.
Yngri flokkar
Valur hefur á að skipa frábæmm þjálf-
urum sem hafa náð góðum árangri
með yngri flokkana. Á síðasta tímabili
þjálfaði Sævaldur Bjamason unglinga-
flokk, drengjaflokk og 11. flokk. Ágúst
Jensson þjálfaði 10. flokk og Bergur Már
Emilsson þjálfaði fjóra yngstu flokkana.
Rúmlega 100 iðkendur vora í yngri
flokkunum og er mikil áhugi og kraftur
hjá öllum.
Genqi yngri flokkanna á síðasta
tímabili
Unglingaflokkur, (fæddir 1985-1984),
endaði í áttunda sæti í íslandsmótinu.
Drengjaflokkur, (fæddir 1986-1987),
komst í átta liða úrslit á íslandsmótinu
og í undanúrslit í bikarkeppninni en liðið
var slegið út af Islandsmeisturanum í
báðum tilvikum.
11. flokkur, (fæddir 1988), var mjög
nálægt því að vinna bæði bikarinn og
íslandsmótið en tapaði á síðustu sekúnd-
unum í úrslitaleikjunum.
10. flokkur, (fæddir 1989), komst í
úrslitakeppnina en tapaði í undanúrslit-
um í íslandsmótinu. Flokkurinn komst í
átta liða úrslit í bikarkeppninni og fékk
silfur í Reykjavíkurmótinu.
9. flokkur, (fæddir 1990), var fámennur
og lék í c-riðli.
8. flokkur, (fæddir 1991), var stór og
góður hópur sem hefur verið á mikilli
uppleið og endaði í 2. sæti í b-riðli.
7. flokkur, (fæddir 1992), var stór og
myndarlegur hópur eins og 8. flokkurinn
sem endaði í 2. sæti í b-riðli á síðasta ári.
Minniboltaflokkarnir eru stór hópur
sem náði mjög góðum árangri og sýndi
framför á síðasta vetri.
Það er mjög ánægjulegt að allir okkar
yngri flokka þjálfarar munu þjálfa áfram
í vetur en þeir hafa staðið sig mjög vel
í starfi yngri flokka hjá Val. Auk þess
hefur Birgir Mikaelsson bæst í hópinn en
hann þjálfar tvo minniboltaflokka í vetur.
Mikill fengur er að fá Birgi til Vals en
hann er einn reyndasti þjálfari landsins.
Það verða því fjórir minniboltaflokkar
í vetur: minnibolti karla 11 ára, rninni-
bolti karla 10 ára, minnibolti karla 9 ára
(og yngri) og minnibolti kvenna.
Valsblaðið 2005
27