Valsblaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 31
Eftín Guðna Olgeirsson
v| ÆA _ \ fj I I . f | |l ’ „ ÍgÍ
[jsl ■ 1 W¥ti
boðnir samningar. Að mínu mati er gríð-
arlega mikilvægt að íslenskar stelpur fari
í auknum mæli til útlanda til sterkari liða
og í sterkari deild en hér heima til að
styrkja landslið okkar. fslenska lands-
liðið er í dag rnjög efnilegt og líklegt til
afreka í framtíðinni og sú reynsla sem
stelpumar fá með því að spila erlendis
mun án efa hjálpa til við það. Um leið og
fleiri stelpur fara til útlanda þá fá fleiri
tækifæri í deildinni hér heima og því
mun breiddin aukast um leið.“
Kom þessi árangur Valsliðsins þár
á óvart?
„Það kom mér í raun ekki á óvart hversu
langt við fórum í keppninni því þangað
höfðum við talað um að reyna að komast.
Það sem kom mér þó á óvart var hversu
sterk lið okkur tókst að slá út úr keppn-
inni. Við urðum fyrir smá áfalli þegar
dregið var í undanriðla en þar lentum
við með norsku og finnsku meisturun-
um sem bæði voru talin sigurstranglegri
en við og eru með sterkari lið á papp-
írunum. Það kom mér mikið á óvart að
ákveðnir hlutir í leik okkar sem gengu
ekki upp hér heima, smullu fullkomlega
saman í Finnlandi. Við munum líklega
aldrei gleyma leiknum á móti norsku
meisturunum Röa þar sem við lékum
betur en nokkru sinni fyrr og náðum að
slá þær út. Það var án efa ánægjulegasta
og óvæntasta stund okkar í keppninni.“
Hvað viltu segja um leikina við
Evrópumeistanana í Potsdam?
„Leikimir við Potsdam voru okkur mjög
erfiðir, ekki bara inni á vellinum heldur
fyrst og fremst andlega. Það var komin
mikil þreyta í hópinn eftir langt og þétt
tímabil. Marmiðunum var náð áður en
Hvaða væntingar hefur þú sem
þjálfari fyrir næsta tímabil?
„Við ætlum okkur að taka því mjög
rólega fyrir áramót þar sem að tímabil-
ið var mjög langt. Það er ljóst að ein-
hverjar breytingar verða á hópnum fyrir
næsta tímabil, við munum að öllum lík-
indum missa 3 lykilleikmenn og munum
væntanlega bæta við okkur einhverjum
leikmönnum. Valsliðið hefur alltaf haft
metnað til að berjast um alla þá titla sem
í boði eru og á því verður engin breyt-
ing.“
Hvernig líst bér á yngri flokkana í
fotbolta hjá félaginu?
við lékum gegn þeim og erfitt að sann-
færa mannskapinn um að við gætum
slegið Evrópumeistarana út. Munurinn
á liðinum er mjög mikill en þó ekki
svo mikill að við eigum að tapa með 17
mörkum í 2 leikjum. Ég tel að við höfum
verið mjög sáttar við frammistöðu okkar
áður en við spiluðum þá
leiki og ekki lagt það
sem þurftum í þá til að
ná fram betri úrslít-
Hvað viltu segja
um Islandsmofið
hér heima og bik
arkeppnina?
„Mótin hér heima voru
mikil vonbrigði
fyrir okkur.
Við spiluðum
frábæran sókn-
arleik nánast allt
sumarið og sköp-
uðum okkur mikið
af marktækifærum í nánast
hverjum leik. En varnarleikurinn
er það sem felldi okkur í baráttunni við
Breiðablik. Breiðablik var sterkasta varn-
arlið deildarinnar, þær útfærðu skyndi-
sóknir sínar nánast fullkomlega á móti
okkur en innbyrðis viðureignir okkar
voru úrslitaleikir sumarsins í báðum
mótunum. Það voru mikil vonbrigði að
ná ekki titli í sumar því við vorum svo
sannarlega með liðið í það.“
„Yngri flokkar okkar hafa sjaldan verið
jafn efnilegir og þeir eru í dag. Við
höfum ráðið til okkar fyrsta flokks þjálf-
aralið sem fer mjög vel af stað. Næsta ár
verður félaginu erfitt vegna aðstöðuleys-
is og þeirra framkvæmda sem eiga sér
stað að Hlíðarenda. Það er mikilvægt
að þjálfarar, iðkendur og foreldrar sýni
félaginu þolinmæði þar til ný aðstaða
hefur verið byggð að fullu. Við munum
án efa eiga eitt glæsilegasta æfingasvæði
landsins í framtíðinni og veldi okkar
stækkar og stækkar og það er
gaman að taka þátt í þeirri
uppbyggingu," segir
Elísabet að lokum
full bjartsýni.
Elísabet Gunnarsdóttir
einbeittur þjálfari.
Valsblaðið 2005
31