Valsblaðið - 01.05.2005, Page 41
Hátíðardagskrá
Her ríki friður, kærleikur,
samheldni, fegura Og orka
Brot úr ávarpi Harðar Gunnarssonar varaformanns Vals á hátíðarsamkomu að
Hlíðarenda í tilefni af skóflustungu að nýjum íþróttamannvirkjum 15. júní 2005
íþróttahúsið sem við erum nú saman-
komin í var tekið í notkun árið 1987. í
ávarpi til félagsmanna í desember 1986
segir þáverandi formaður Vals, Pétur
Sveinbjarnarson m.a.: „Samþykkt hefur
verið að reisa á sama tíma ásamt íþrótta-
húsi tveggja hæða tengibyggingu milli
íþróttahúsanna og verður hluti neðri
hæðar tekin í notkun á sama tíma og nýtt
íþróttahús. Þessi atburður mun marka
tímamót. Valur verður fyrst íslenskra
íþróttafélaga til þess að „flytja heim“ á
sitt félagssvæði alla heimaleiki í þremur
vinsælustu íþróttagreinum landsins. “
Gólffjöl til varðveislu
I þessu húsi hefur margur góður sigur
unnist og m.a. hefur meistaraflokk-
ur karla í handknattleik unnið 8 af 20
íslandsmeistaratitlum félagsins á meðan
hússins hefur notið við. Það er því við
hæfí að hluti þeirra handknattleikskappa
sem ekki hvað síst gerðu sögu þessa
húss merkilega, leikmenn eins og Geir
Sveinsson, Dagur Sigurðsson, Ólafur
Stefánsson og Jón Kristjánsson loki
þessu húsi á táknrænan hátt með því að
taka fjöl úr gólfi hússins með aðstoð
Sverris Traustasonar umsjónarmanns
mannvirkja frá vígslu hússins og færi
hana formanni félagsins til varðveislu.
Þessi fjöl tengist mjög sögu hússins og
handknattleiks að Hlíðarenda en hún er
sú hin sama og Dagur Sigurðsson steig
á þegar hann skoraði jöfnunarmark Vals
gegn KA í sögufrægum úrslitaleik (árið
1995), en Valur tryggði sér síðan sigur
í framlengingu þess Ieiks eins og frægt
var. Jafnframt er gaman að geta þess að
Jón Kristjánsson sem gekk til liðs við
Val 1989 vann hér 7 íslandsmeistaratitla
sem leikmaður og síðan leikmaður og
þjálfari á þessu gullaldarskeiði. Auk þess
var Jón einnig Islandsmeistari í knatt-
spymu á þessu tímabili og því áttfald-
ur íslandsmeistari í flokkaíþrótt sem er
einsdæmi, a.m.k. í sögu Vals.
Skóflustunya
Nú er komið að hápunkti þessar hátíð-
ardagskrár. Níu núlifandi formenn knatt-
spyrnufélagsins Vals þeir Sigurður Ólafs-
son formaður 1946, Jóhann Eyjólfsson
1950-1951, 1966, Ægir Ferdinandsson
1967-1969 / 1975-1976, Þórður Þorkels-
son 1970-1974, Bergur Guðnason 1977-
1980, Pétur Sveinbjarnarson 1981-1987,
Jón Zoéga 1988-1993, Reynir Vignir
1994-2002 og Grímur Sæmundsen frá
2002 taka nú fyrstu skóflustunguna að
glæsilegum mannvirkjum sem munu rísa
hér að Hlíðarenda á næstu misserum.
Við vígslu fyrsta vallar Vals 6. ágúst
1911 sagði síra Friðrik m.a. „Kærið
ykkur ekki um að vinna með röngu eða
ódrengilegu bragði. Þeir sterkari boli
aldrei hinum yngri og lin-
ari frá réttum leik. Segið
ávallt satt og venjið yður á
að segja til ef ykkur verður
á, og játa það. Hælist aldrei
yfir þeim sem tapa, og gleðj-
ist líka með vel leiknu sparki
mótherjanna. Verið fljótir að
hlýða þeim er leik stjóma,
einnig þó að þeir séu yngri“.
Og að lokum sagði síra
Friðrik „Hér ríki friður, kær-
leikur, samheldni, fegurð og
orka. Hér þrífist aldrei neitt ósæmilegt
og ljótt. Guð blessi svæði vort, leik vom
og líf. Og svo allir til starfa! Allir á sinn
stað!“
Erfiðir mánuðir framundan hjá iðk-
endum
Næstu mánuðir verða félaginu erf-
iðir m.t.t. aðstöðu fyrir iðkendur. Þetta
er ekki í fyrsta sinn í sögunni sem svo
málin axlast þannig. Árið 1925 fór Valur
á „flakk" er svo má að orði komast en
þá hafði félagið þrisvar sinnum þurft að
færa sig um set á Melununt eftir að hafa
búið sér til knattspyrnuvelli með eigin
höndum. Þá eins og nú reynir á sam-
stöðu, tillitssemi og þrek félagsmanna
þangað til flutt verður í glæsilegustu
íþróttaaðstöðu sem íslenskt félag hefur
upp á að bjóða.
Valsblaðið 2005
41