Valsblaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 43
Hátíðardagskrá
Sigurður Olafsson heiðursfélagi og jyrr-
verandi formaður Vals.
Ágætu Valsmenn. Ég nefndi aðdrag-
anda fyrr í ræðu minni. En hver er hinn
raunverulegi aðdragandi þess að við
stöndum hér í dag? Það er framsýni og
frumkvæði forystumanna Vals á 4. ára-
tug síðustu aldar, sem tóku ákvörðun um
að kaupa Hlíðarenda, en gengið var frá
þeim kaupum þann 10. maí 1939. Hvati
að þessum kaupum voru hrakningar
félagsins um að fá sæmandi aðstöðu til
íþróttaiðkunar fyrir félagsmenn sína.
í þriðja tölublaði Vals, sem kom út
á 30 ára afmæli félagsins árið 1941,
skrifaði Olafur Sigurðsson, þáverandi
formaður Vals grein undir fyrirsögn-
inni Framtíðarheimkynni Vals. Þar lýsi
hann framtíðarsýn Vals með kaupum á
Hlíðarenda með þessum hætti: „Þó kaup-
in hafi verið gerð, er takmarkinu ekki
náð. Þau eru aðeins upphafið. Upphaf
þess starfs, sem á að tryggja félaginu
fagran og fullkominn samastað, þar sem
unnt verði að einbeita allri orku félags-
ins að hinum eiginlegu verkefnum þess,
íþróttaiðkunum, sakir fullkominna ytri
skilyrða og efnalegs sjálfstæðis...“ Síðar
í greininni segir Olafur: „Hugsjónir
okkar um fullkomnun staðarins í fram-
tíðinni verða að vera háleitar og miklar.
Við verðum að gera til hans meiri kröfur
en nokkurn tíma hafa verið gerðar hér á
Iandi í þessum efnum, svo miklar að þær
standist kröfur tímans um næstu 100 ár
a.m.k. Með það fyrir augum verður hvert
handtak að vinnast og hver hugsun að
miðast."
Þarna talar sannur frumkvöðull. Það
er gæfa okkar Valsmanna að hafa átt
þessa framsýnu forystumenn, sem eftir
kaupin á Hlíðarenda réðust ótrauðir í það
risavaxna verkefni að skapa reykvískri
íþróttaæsku aðstöðu til æfinga og keppni
að Hlíðarenda á næstu áratugum eftir
kaupin. Við Valsmenn erum svo gæfu-
samir að njóta enn samvista við einn af
þessum stórkostlegu brautryðjendum,
sem lögðu hinn raunverulega grunn þess
að við stöndum hér í dag. Sá er enginn
annar en Sigurður Ólafsson, heiðurs-
félagi Vals, sem heiðrar okkur með nær-
veru sinni hér í dag 89 ára gamall. Við
skulum öll rísa úr sætum og hylla Sigurð
með lófataki um leið og við þökkum
honum og samherjum hans ómetanlegt
starf fyrir Val.
Ágætu Valsmenn. í dag er gleðidag-
ur að Hlíðarenda. Það er uppgangur og
kraftur í öllu starfi félagsins. Það hefur
sannast enn og aftur að hinar sterku
rætur sem séra Friðrik Friðriksson og
Valsungarnir hans sköpuðu á öndverðri
síðustu öld hafa ætíð dugað til að blása
eldmóði í forystumenn Vals, sérstaklega í
mótbyr. Þetta gerðist í aðdraganda kaupa
á Hlíðarenda á sínum tíma og þetta hefur
gerst í aðdraganda þeirrar uppbyggingar
sem nú er að hefjast. Knattspyrnufélagið
Valur stendur nú á þröskuldi nýrrar og
bjartrar framtíðar.
Eg óska okkur Valsmönnum og öllum
Reykvíkingum til hamingju með daginn.
Takk fyrir.
AEGA'
Finntir A
Hart barist í heimaleik við FH að kvöldi hátíðardagsins lS.júní 2005fyrir framan á fjórða þúsund áhorfendur.
Valsblaðið 2005
43