Valsblaðið - 01.05.2005, Síða 52
Frábært tímabii hjá strákunum ug
Evrúpuævintýri s-;
Ársskýrsla knatlspyrnudeildar árið 2005
Stoltir og glaðir Islandsmeistarar í ó.flokki kvenna 2005 ásamt þjálfurum sínwn Leu
Sif Valsdóttur og Hildigunni Jónasdóttur. Efri röð frá vinstri: Katla Riín Arnórsdóttir,
Vaka Njálsdóttir, Harpa Brynjarsdóttir, Asa Bríet Bratteberg, Kolbrún Eyþórsdóttir,
Lára Tlieódóra Magnúsdóttir, Unnur Björk Elíasdóttir. Neðri röð frá vinsti: Katla
Rúnarsdóttir, Klara Sigurðardóttir, Kristín Jónsdóttir, Rúna Oddsdóttir, Elín Metta
Jensen, Hildur Antonsdóttir og Berglind Rós Ágústsdóttir. Liggjandi fyrir framan eru
Asta Rún Agnarsdóttir og Morgan Marie Þorkelsdóttir.
Stjóm knattspyrnudeildar Vals starfsárið
2004-2005 skipuðu:
E.Börkur Edvardsson,/orwwdw
Jón Grétar Jónsson, varaformaður
Guðjón Olafur Jónsson, meðstjórnandi
Kjartan Georg Gunnarsson, meðstj.
Otthar Edvardsson,/or/7t. m.fl.ráðs karla
Bragi Bragason, meðstjórnandi
Erla Sigurbjartsdóttir, form. kvennaráós
Jón Höskuldsson, form. unglingaráðs
Þjálfarar yngri flokka
Kvennaflokkar
A liðnu starfsári störfuðu 20 þjálfarar
við 10 flokka iðkenda, bæði aðalþjálf-
arar og aðstoðarþjálfarar með skriflega
samninga til eins eða tveggja ára. 7. fl.
kv. var starfræktur sjálfstætt í fyrsta sinn
undir stjóm Rakelar Adolphsdóttur og
Kristínar Jónsdóttur og voru tæplega 25
stúlkur skráðar í flokknum um haustið.
Eins og alltaf varð nokkur breyting á
skipan þjálfara á liðnu ári og þær helst-
ar að Soffía Ámundadóttir tók við 3.
fl. kvenna með aðstoð Oddnýjar Önnu
Kjartansdóttur. Margrét Jónsdóttir fyrr-
um leikmaður meistaraflokks kvenna tók
við 4. fl. kv. en hvarf í fæðingarorlof í
júnímánuði og þó tók Sóley Ósk Elídóttir
við hennar starfi. Aðstoðarþjálfari var
Signý Heiða Guðnadóttir. Aðrar breyt-
ingar urðu ekki stúlknamegin. Elísabet
Gunnarsdóttir þjálfaði 5. fl. kv. með
aðstoð Margrétar Lám Viðarsdóttur,
Lea Sif Valsdóttir þjálfaði 6. fl. kv. með
aðstoð Hildigunnar Jónasdóttur.
Elísabet Gunnarsdóttir sem verið hefur
lengi við þjálfun yngri flokka félagsins
hættir yngri flokkaþjálfun en þó ekki
öllum afskiptum af þjálfun stúlknaflokka
eins og getið verður um hér á eftir.
Karlaflokkar
Guðmundur Brynjólfsson var aðal-
þjálfari 3. fl. karla og honum til aðstoð-
ar um sumarið var Davíð Bergmann
Davíðsson. Þór Hinriksson tók við 4. fl.
karla og hafði Elvar Már Svansson sér
til aðstoðar. Gylfi Sigurðsson var áfram
þjálfari 5. fl. karla og Þórður Jensson
aðstoðarþjálfari. Með 6. fl. karla voru
þeir Skúli Sigurðsson og Jónas Hróar
Jónsson eins og áður og Benedikt Bóas
Hinriksson var þjálfari 7. fl. karla til loka
maímánaðar sl., en hvarf þá til annarra
starfa. Það var föngulegur hópur þjálfara
sem leysti þá Benedikt af hólmi, Baldur
Þórólfsson, Dóra Stefánsdóttir og Rakel
Logadóttir. Gerð var tilraun í sumar með
að breyta æfingatíma 7. fl. drengja og
tengja æfingar starfi Sumarbúða í borg
og tókst það með ágætum.
Unglingaráð þakkar þeim þjálfurum
sem létu af störfum á síðasta tímabili
fyrir samstarfið á liðnum árum og óskar
öllum núverandi þjálfurum velfarnaðar í
krefjandi starfi.
Yfirþjálfari
Yfirþjálfari var ekki starfandi á liðnu
starfsári en Þórður Jensson var í starfi
íþróttafulltrúa félagsins. Til að bæta
enn við og auka veg þjálfunar yngri
flokka félagsins voru á haustmánuðum
ráðnir tveir yfirþjálfarar sem sinna því
starfi aðgreint eftir flokkum. Verður
Elísabet Gunnarsdóttir yfirþjálfari 2. fl.
kv. og allra yngri flokka kvenna og Þór
Hinriksson tekur að sér sömu flokka
karla. Verður þessi ákvörðun án efa mikil
lyftistöng við allt starfið í yngri flokkum
félagsins og nú hafa þjálfarar aðgang
að faglegri aðstoð sem jafnframt er
kærkomið aðhald fyrir vandasamt starf
barna- og unglingaþjálfara.
52
Valsblaðið 2005