Valsblaðið - 01.05.2005, Side 55

Valsblaðið - 01.05.2005, Side 55
í»»’> l immr K. Iris Andresdóllii lagði skóna d hillunar í hausl eftir farsœlan —<wl Laufey Olafsdótlir Jlýgur lidtl. I'iinnir K. I)óra StefáuuT- diillir i barótllit iiiii hollaiiii. 4. fl. kvenna vann sig upp í A-deild á ný og átti gott sumar, náði t.d. verðlauna- sæti í Rey Cup og komst í úrslitakeppni Islandsmótsins. 5. fl. kvenna stóð sig vel á öllum mótum og var oftar en ekki í verðlaunasætum. B liðið varð t.d. Reykjavíkurmeistari, vann Símamótið bæði aðalmótið og hraðmótið og A liðið fékk silfurverð- laun á Pæjumótinu á Siglufirði og brons á Símamótinu. A og B liðið komst í úrslitakeppni Islandsmótsins og var hársbreidd frá því að leika til úrslita um Islandsmeistaratitilinn. Að öllum flokkum ólöstuðum stendur þó árangur 6. fl. kvenna upp úr sum- arið 2005, en þær stúlkur gerðu sér lítið fyrir og urðu íslandsmeistarar 2005, þær fyrstu í sögunni, því mót í 6. fl. kv. hefur ekki áður verið spilað sem íslandsmót. Flokkurinn var nánast ósigrandi allt tímabilið og vann flest mót ársins með yfirburðum. Eru leikmönnum og þjálf- urum flokksins, þeim Leu Sif Valsdóttur og Hildigunni Jónasdóttur færðar hamingjuóskir í tilefni af glæsilegan árangri og íslandsmeistaratitli. Þá vann 7. fl. kv. til bronsverðlauna á Símamótinu þrátt fyrir litla reynslu af mótum, en árangur Valskvenna á mótinu var einn sá allra besti í langri sögu félags- ins þegar Gullmótin eru annars vegar. f heild má segja að starfið í flokkunum hafi gengið vel þó ætíð megi bæta árang- urinn inn á vellinum. Að því verður áfram unnið markvisst með betur mennt- uðum þjálfurum ráðsins. Unglingaráð hafði ekki neinn sér- stakan starfsmann á tímabilinu en naut aðstoðar íþróttafulltrúa, framkvæmda- stjóra og annarra á skrifstofu félagsins og eru þessu fólki færðar bestu þakk- ir fyrir veitta aðstoð við unglingaráð. Aðalstyrktaraðili unglingaráðs Vals er sem fyrr Smith & Norland ehf. Þá hafa Bræðumir Ormsson og Landsbanki íslands hf. styrkt unglingastarf félagsins og eru þeim færðar bestu þakkir fyrir. Skipan unglingaráðs A liðnu starfsári störfuðu í unglinga- ráði, auk formanns, þau Gríma Huld Blængsdóttir, ritari, Guðni Olgeirsson, gjaldkeri, Jónína Ingvadóttir og Sigurður Haraldsson. Sú breyting verður í röðum unglingaráðs að Bára Bjarnadóttir kemur til starfa á ný og við bætist Jón Gunnar Bergs, sem Valsmenn þekkja. Úr unglingaráði hverfa að þessu sinni Gríma Huld Blængsdóttir og Sigurður Haraldsson. Eru þeim færðar bestu þakk- ir fyrir samstarfið. Ljóst er að áfram verður að vinna óþrjótandi uppbyggingarstarf í öllum flokkum félagsins með áhuga og natni. Það er von unglingaráðs að sú mikla breyting sem varð í upphafi starfsársins á skipan þjálfara muni skila sér í bættum aga og árangri iðkenda innan vallar. Þá er mikil von bundin við störf yfirþjálfara flokkanna en þá hefur vantað í þjálfara- teymi félagsins um allt of langt skeið. Meístaraflokkun kvenna Meistaraflokkur kvenna byrjaði sitt tíma- bil vel. Liðið var m.a. Islandsmeistari innanhúss, Deildarbikarmeistari, Reykjar- víkurmeistari, hafnaði í öðru sæti á Islandsmótinu og komst í fjórðungsúrslit Visabikars og sigraði í leik um Meistarar Meistaranna. Elísabet Gunnarsdóttir heldur áfram að þjálfa Valsliðið. Hún hefur náð frábærum árangri og er tvímælalaust einn hæfasti þjálfarinn í íslenskri kvennaknattspyrnu í dag. Theodór Sveinjónsson verður henni til aðstoðar en hann mun einnig þjálfa 2. fl.kvenna. Við fengum öflugan lið- styrk þegar Margrét Lára Viðarsdóttir, ein af bestu knattspyrnukonum lands- ins, gekk í Val. Elín Svavarsdóttir bætt- ist einnig í hópinn en hún kemur frá Valsblaðið 2005 55

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.