Valsblaðið - 01.05.2005, Page 60
Eftir Gunnar Zoéga
Drauma - valur.is
Heimasíða Vals hefur verið í stöð-
ugri þróun síðan hún var fyrst sett upp.
Notkunin eykst á hverju ári og kröfurnar
um mikla virkni verða sífellt meiri. Frá
upphafi hefur markmiðið með heimasíð-
unni verið að auka umfjöllun um það
sem er í gangi hjá Val en ekki að vera
með stóra og mikla síðu sem hefur litla
umfjöllun.
Umfjöllunin hefur verið góð að und-
anfömu og vonandi að svo verði áfram.
Núna er því tækifæri til að bæta við
enn frekari aðgerðum við heimasíðuna.
Síðustu mánuði hefur verið í gangi grein-
ingarvinna á þeim kröfum sem félagið
gerir til góðrar heimasíðu.
Helstu umbótaatriði
- Auka myndaflæði
- Vera með myndasýningu frá leikjum og
viðburðum.
- Beinar útsendingar frá leikjum og við-
burðum.
- Yngri flokka síður.
- Auka til muna umfjöllun um yngri flokka
og vera með aðgreindar síður fyrir yngri
flokkana.
- Upplýsingar frá þjálfurum
Þjálfarar eru í dag margir hverjir með
eigin bloggsíðu þar sem koma fram helstu
tilkynningar og fréttir. Hugmyndin er að
hafa þær tengdar heimasíðu Vals.
- Auka almennar upplýsingar og gögn.
- Upplýsingar um starfsemi félagsins (kór-
inn, getraunir, æfingar, sumarbúðir, sögu
Vals, o.s.frv.).
- Vefverslun - Vera með Valsvörumar til
sölu sem mun auðvelda öllum að finna
Valsvörumar á einum stað.
- Unnt er að telja upp marga þætti f viðbót,
m.a. greiðsluþjónustu á vefnum vegna
æfingagjalda. félagsgjalda og ársmiða, en
þetta verður allt að greina eftir mikilvægi.
Frekari þróun mikiluæy
Það er ljóst að það eru mörg tækifæri
við heimasíðu Vals og margar leiðir sem
koma til greina við frekari þróun síð-
unnar. Með uppfærslu eins og talið er
upp hér á undan þá er þörf á enn virk-
ari umsjón með síðunni, t.d. formlegri
ritstjórn. En markmiðið verður áfram
að hafa umfjöllunina í fyrirrúmi af
öllu starfi félagsins og bæta við nýjum
aðgerðum í þeim þrepum sem við ráðum
við.
Arni Gunnar hefur átt heiðurinn á
heimasíðunni frá upphafi en hann hefur
falið öðrum aðilum umsjón með síð-
unni. Allar ábendingar varðandi þróun
heimasíðunnar eru vel þegnar. Einnig eru
áhugasamir einstaklingar sem vilja vinna
að uppbyggingu heimasíðunnar beðnir
að hafa samband við framkvæmdastjóra
félagsins, en það er ómetanlegt fyrir
félagið að hafa sjálfboðaliða sem .eru
reiðubúnir að leggja sitt af mörkum.
Samninyur við PUMA um æfiugagalla og keppnistreyjur
Valur hefur gert samning við Puma um
æfingagalla og keppnistreyjur fyrir allar
deildir félagsins, bæði í yngri flokkum
og meistaraflokkum. Allir flokkar félags-
ins fá nýjar Puma keppnistreyjur og einn-
ig fá þjálfarar ákveðinn íþróttafatnað frá
Puma.
Landsbankinn niðurgreiðir nýjan
félagsgalla frá Puma um kr. 1500 sem
eru lagðar inn á reikning iðkandans í
Landsbankanum. Fjölmargir iðkendur
hafa fengið sér þennan rauða félagsgalla
sem fæst í Pumabúðinni á Laugavegi.
Knattspymudeildin fékk auk þess á
árinu styrktaraðila til að niðurgreiða
bláan Pumaæfingagalla sem er ætl-
aður öllum iðkendum
knattspyrnudeildar.
Styrktaraðilar greiddu
niður æfingagallann
og voru lógó þeirra
sett á gallana en nýir
iðkendur og þeir sem
hafa greitt æfinga-
gjöld geta fengið
afhentan galla á 2000
kr. meðan birgðir
endast í Pumabúðinni
á Laugavegi.
Nokkrir leikmenn meistaraflokks í nýju Pmakeppnistreyjunum
við kynninguna. Frá vinstri: Dóra María Lárusdóttir, Iris
Andrésdóttir, Sigurbjörn Hreiðarsson, Hálfdán Gíslason og
Kjartan Sturluson.
60
Valsblaðið 2005