Valsblaðið - 01.05.2005, Page 66
Myndir jrá Evrópukeppninni í haust.
Stuðarar mœttir á pallana í handboltaleik með trommurnar.
tímabilið á því að fara í keppnisferðalag
til Spánar og voru stelpurnar mjög dug-
legar að safna fyrir ferðinni ásamt því
að þær ætla að taka þátt í Evrópukeppn-
inni á nýju ári. Sigur á Opna Reykjavík-
urmótinu gaf tóninn og stelpurnar eiga
örugglega eftir að vera í toppbaráttunni
í vetur enda í mjög góðum höndum
hjá þeim Agústi Jóhannssyni og Karli
Erlingssyni.
Díana Guðjónsdóttir lagði skóna á hill-
una fyrir tímabilið og Soffía Rut Gísla-
dóttir fór sem Au pair til Spánar. Þeim
eru þökkuð góð ár í Val.
Yngni fiokkar félagsins
ó.flokkur kvenna. Efri röð frá vinstri: Kolbrún Franklín aðst.þjálf, Lea Jerman-
Plesec, Hildur Björk Kvaran, Sólveig Lóa Höskuldsdóttir, Hulda Steinunn Steinsdóttir,
Hólmfríður Gunnlaugsdóttir og Sigríður Unnur Jónsdóttir þjálfari. Neðri röð frá
vinstri: Harpa Brynjarsdóttir, Fífa Eik Hjálmarsdóttir og Rakel Jóhanna Ragnarsdóttir.
Það sem stendur upp úr frá síðasta
tímabili er að sjálfsögðu íslandsmeist-
aratitill 2. flokks karla. Strákarnir héldu
uppi merkjum félagsins en að sjálfsögðu
hefðum við viljað meira en það er lagð-
ur mikill metnaður í yngri flokka starfið
í vetur og mjög reyndir þjálfarar í okkar
röðum.
Fyrir tímabilið fengum við Heimi
Ríkarðsson, einn reyndasta og besta
þjálfara landsins, til að taka við af Guð-
mundi Arna Sigfússyni sem ákvað að
taka við gamla liðinu sínu Gróttu. Guð-
mundur gerði frábæra hluti á Hlíðarenda
og skilaði mjög góðunt árangri. Hans er
sárt saknað en þökkuð frábær ár.
Heimir mun því aðstoða Oskar Bjama
með meistaraflokk karla ásamt því að
þjálfa 2. og 3. flokk karla. Það þarf varla
að fara mörgum orðum um hve mikill
fengur er í Heimi en af óskiljanlegum
ástæðum ákváðu Framarar að reka þenn-
an góða þjálfara! Líklega það besta sem
kom fyrir okkur Valsmenn því þá fengunt
við hann yfir til okkar. Karl Erlingsson er
líklega sá þjálfari á landinu sem hefur
66
Valsblaðið 2005