Valsblaðið - 01.05.2005, Page 75
Framtíðarfólk
„flllt er partur ai programmet"
Buftpún María Þorhjörnsdóttir leikmaður meistaraflokks kvenna í knattspyrnu
Fæðingardagur og ár: 31. ágúst 1986.
Nám: Er á fjórða ári í Menntaskólanum
við Hamrahlíð.
Kærasti: Nei.
Hvað ætlar þú að verða? Er að hugsa
um að verða arkitekt.
Frægur Vatsari í fjölskyldunni: Pabbi
minn var nú á handboltanum í gamla
daga, Þorbjöm Guðmundsson sem var nú
í frægu mulningsvélinni.
Hvernig hafa foreldrar þínir stutt þig
í fótboltanum? Mjög vel, þeim finnst
gaman að fylgjast með, sérstaklega pabbi
þar sem hann mætir á alla leiki með
Valsderhúfu og hvetur okkur áfram svo
er mamma í kvennaráðinu að reyna að
þóknast okkur prinsessunum.
Hver er besti íþróttamaðurinn í fjöl-
skyldunni? Ég myndi nú segja að pabbi
eigi enn þann titil þar sem hann náði
mjög langt í handboltanum og komst í
landsliðið.
Hvað gætir þú aldrei hugsað þér að
verða? KR-ingur.
Stjörnuspá þín fyrir næsta ár: Tækla
allt það sem kemur að mínum fótum ;)
Af hverju fótbolti? Ég æfði alltaf hand-
bolta þegar ég var yngri en svo kynntist
ég vinkonum mínum í Háteigsskóla og
þær voru allar að æfa hjá Betu svo ég
fylgdi straumnum. Sem ég sé ekki eftir í
dag.
Af hverju Valur? Maður fer nú ekki að
særa pabba og fara í annað félag.
Eftirminnilegast úr boltanum: Evr-
ópukeppnin og undirfatamyndatakan
obbobbobb.
Hvernig var að taka þátt í Evrópu-
keppninni í sumar? Alveg ólýsanlegt,
þetta var rosalega mikil reynsla og
skemmtilegt verkefni.
Ein setning eftir tímabilið: Dí hvað
við hefðum átt að vinna svo við hefðum
getað notið þessa að segja þessa setn-
ingu: fucking enjoy it.
Besti stuðningsmaðurinn: Það er nú
margt um manninn á þeim bæ.
Koma titlar í hús næsta sumar? Já það
verður sko komið með titla heim á Hlíð-
arenda. Það er ekki að spyrja að því.
Skemmtilegustu mistök: Tók þátt ein-
hvem tímann í tískusýningu og hárið
festist í glossinum.
Mesta prakkarastrik: Þegar ég stríddi
Signýju vinkonu minni þar sem hún stóð
fyrir utan útidyrahurðina heima um nótt
og ég kom með sjúklegan hræðslusvip
og benti eins og það stæði einhver fyrir
aftan hana ... aldrei hlegið jafn mikið.
Fyndnasta atvik: Þegar Dóra María
hljóp út af vellinum þegar hún skoraði og
hélt að leikurinn væri búinn.
Stærsta stundin: íslandsmeistarar 2004
og í hálfleik í 16 liða
úrslitum í Evrópu-
keppninni á móti
Kazacstan liðinu
þar sem sungið var
Simply the best.
Athyglisverðasti leik-
maður í meistara-
flokki: Guðný a.k.a.
Guona þar sem hún
er ruglaðari en ég.
Hver á Ijótasta
bílinn? íris og
Ásta eiga í harðri
baráttu um þann
heiður.
Hvað
þínum húmor
best? Hmm, alvar-
lega steikt og Stella í
(sjá þessi slobbúr).
Fleygustu orð: Jjaa lukkan.
Mottó: Að allt sé partur af pro
grammet.
Fyrirmynd í boltanum: Laufey
Ólafsdóttir.
Leyndasti draumur: Komast í
landsliðið.
Við hvaða aðstæður líður þér
best: Þegar ég er í íþróttafötum og
þarf ekki að vera pæja hehe.
Hvaða setningu notarðu oftast? Er
ekki allt í sómanum og hvað segja
bændur?
Skemmtilegustu gallarnir: Á það oft
til að keyra í vitlausar áttir og mæta með
tannkrem í hárinu í skólann.
Hvað er það fallegasta sem hefur verið
sagt við þig? Guðrún þú ert alveg jafn
sæt með teinana.
FuIIkomið laugardagskvöld: Kósí
kvöld með kæró eða ffflast e-ð með
stelpunum.
Hvaða flík þykir þér vænst um? Dún-
vestið mitt.
Besti fótboltamaður sögunnar á
Islandi: Ætli það séu ekki feðgarnir
Amór og Eiður Guðjohnsen.
Besti fótboltamaður heims: Ronaldinho
og Zlatan.
Besti söngvari: Gavin Degraw.
Besta hljóm- sveit: U2 og Sálin.
Besta bíómynd: Stella
í orlofi (mín sér fyrir
öllu).
Besta bók: Les ekki
mikið bækur en Mýrin
hefur vinninginn að
u sinni.
Besta lag: Dont let me down með
Steriophonics.
Uppáhaldsvefsíðan: Skoða
oftast fotbolti.net og svo eru
það blogg vinkvenna minna.
Uppáhaldsfélag í enska
boltanum: Man Utd það
held ég nú.
Eftir hverju sérðu mest?
Maður spyr sig...
Ef þú yrðir að vera ein-
hver annar: Hefði nú
ekkert á móti því að vera
Angelina Jolie þar sem
hún er búin að næla í
hann Brad Pitt.
4 orð um núver-
andi þjálfara:
Steikt, stríð-
in, hress og
ákveðin.
Ef þú værir
alvaldur í
Val hvað
myndir þú
gera? Ég myndi setja
nýjar hurðir á búningsklefana án skráar-
gata.
Valsbiaðiö 2005
75