Valsblaðið - 01.05.2005, Qupperneq 84
Ungir Valsarar
Það en alltal gaman að sja pabba á
leikjum öskrandi á akkur strákana
Orri Freyr Gíslason leikur handbolta með 3. flokki karla og fákk Magnúsarbikarinn 2005
Orri Freyr er 17 ára í 3. flokki. Ástæð-
an fyrir því að hann er í Val er að hann
flutti í hverfið rétt áður en hann varð 6
ára gamall og mamma fór þá með hann á
fyrstu fótboltaæfinguna hjá Val og hann
spilaði fyrsta leik sinn fyrir Val á 6 ára
afmælisdaginn. Núna segist hann vera í
Val af því að Valur sé langbesta liðið og
alltaf í fremstu röð.
- Hvaða hvatningu og stuðn-
ing hefur þú fengið frá foreldrum
þínum í sambandi við handbolt-
ann?
„Pabbi og mamma hafa hjálp-
að mér mikið og alltaf gaman að sjá
þau á leikjum. Það er alltaf gott að sjá
pabba á leikjum öskrandi á okkur strák
ana og mig.“
- Hvernig gengur flokknum?
„Við erum allir að koma til,
erum með hörkulið og eigum
alveg að geta unnið
einhverja titla.
Veturinn í fyrra
var ekki alveg
nógu góður,
við duttum út
í 8 liða úrslit-
um Islands-
mótinu. Hóp-
urinn okkar
er mjög
góður, við
erum með
þrjá lands-
liðsmenn. En
erum alltaf
að bæta okkur
bæði í vörn og
sókn.“
- Segðu frá
skemm tileg-
um atvikum úr
boltanum.
„Ég man alltaf
þegar við urðum
bikarmeistarar oi
Húsavíkurmeistarar. En utan vallar eru
það allar ferðimar sem við höfum farið
í og þá sérstaklega ferðin á Partilla Cup
sumarið 2004, og núna síðast ferð með
landsliðinu til Parísar í október.“
- Áttu þér fyrirmyndir í hand-
boltanum?
„Að sjálfsögðu
er það Sigfús
Sigurðssom
og svo
má nefna
R ó b e r t
Gunnars-
son.“
- Hvað
þarf til að ná
langt í hand-
bolta eða íþrótt-
um almennt?
„Mæta á
allar
æfingar og æfa líka sjálfur, svo er nauð-
synlegt að eiga góða félaga ásamt því að
hafa góða þjálfara en þessa tvö atriði hafa
alltaf verið í góðu lagi hjá Val. Einnig er
mikilvægt að stunda skólann vel þannig
að maður þurfi ekki að hafa áhyggjur af
því heldur getur einbeitt sér að boltanum.
Ég þarf að bæta styrk og nýtingu, hætta
að tuða í dómaranum, en utan vallar það
er svo löng upptalning það verður að
bíða betri tíma og stærra blaðs.“ •
- Hvers vegna handbolti?
„Handbolti er hröð og skemmtileg
íþrótt. Ég æfði fótbolta en ég held að ég
eigi meiri framtíð fyrir mér í handbolta.
Handbolti er eina íþróttin sem ég stunda
í dag þannig að handboltinn er mjög stór
þáttur í mínu lífi og verður vonandi lengi
enn.“
- Hverjir eru þínir framtíðardraum-
ar í handbolta og lífinu almcnnt?
„Verða atvinnumaður og svo á seinni
árum spilandi þjálfari, en svo hef ég allt-
af píparann til vara, ég er að læra pípu-
lagnir. En fyrst og fremst handbolta.“
- Þekktur Valsari í fjölskyldunni.
Berglind Hansdóttir.“
- Hvaða þýðingu hefur það fyrir
þig að hafa fengið Magnúsarbik-
arinn?
„Það er alltaf gaman að taka á móti
viðurkenningum að fá svona viður-
kenningu eflir sjálfstraustið og und-
irstrikar það að maður sé á réttri leið.
Að sjálfsögðu kom þetta mér ekkert
á óvart, hefði orðið hissa ef ég hefði
ekki fengið hann (bara smá grín!).
Bikarinn er veittur til efnilegasta
leikmanns yngri flokka Vals. Þetta er
mjög mikill heiður."
- Hver stofnaði Val og hvenær?
„Séra Friðrik Friðriksson 11. maí
árið 1911.“
- Lífsmottó: „Rólegir".
84
Valsblaðið 2005