Búnaðarrit - 01.01.1977, Síða 26
20
BUNAÐARRIT
Helztu viðfangsefni fundarins voru, landnýting, fóðurrækt-
un, ýmsir þættir sauðfjárrælvtar og nautgriparæktar, mögu-
leikar á framleiðslu kjarnfóðurs á íslandi, verndun votlcndis,
áætluuargerð í landbúnaði, og að lokum voru rædd störf
héraðsráðunauta.
Námskeið og fundir fyrir bœndur. Engin lengri kennslunám-
skeið voru lialdin fyrir bændur, en allmargir fræðslufundir
voru haldnir, að ósk búnaðarsambanda og búfjárræktarfélaga,
þar sem einn eða fleiri starfsmenn félagsins mættu til að flytja
erindi og svara fyrirspurnuin. Hlutaðeigandi ráðunautar geta
um í starfsskýrslum sínum, livar þeir fluttu erindi, og uin
hvað. Námskeið í vélrúningu sauðfjár voru haldin á nokkrum
stöðum á Austurlandi og í Dalasýslu. Búnaðarfélag íslands
tók þátt í greiðslu launa kennara á þessum námskeiðuin.
Frœðslufundur um skýrsluhuld í nautgriparœkt o.fl. var haldinn
að Hvanneyri á vegum Búnaðarfélags íslands dagana 25.—26.
maí. Var fundur þessi haldinn fyrir Iiéraðsráðunauta og aðra
þá starfsmenn búnaðarsambanda, sem sjá um skýrsluhald hjá
nautgriparæktarfélögunum. Fundinn sóttu 13 starfsmenn frá
11 búnaðarsamböndum, en fjórir aðrir íluttu frainsögu auk
fundarstjóra Olafs E. Stefánssonar.
Umrœðufundur um breylt skipulag ráðunaulastarfsemi. Hinn
18. nóvember hélt Búnaðarfélag íslands í samvinnu við Bænda-
skólann á Hvanneyri fund með boðuðum fulltrúum, frá
bændum, liéraðsráðunautum, bændaskólunum, Búnaðarfélagi
íslands, Rannsóknarstofnun landbúnaðarins, Ræktunarfélagi
Norðurlands og Landbúnaðarráðuneytinu. Upphafsmaður
fundarins var Þórarinn Lárusson, ráðunautur hjá Ræktunar-
félagi Norðurlands, en liann hafði lireyft þessu máli á fundi
Fjórðungssambands Norðlendinga, sem haldinn var á Blöndu-
ósi í júní og fyrr er frá sagt. Þórarinn gagnrýndi þar, að ófull-
nægjandi samband væri milli þeirra aðila, sem öfluðu þekkingar
í landbúnaði og þeirra, sem ættu að miðla henni til bænda, og
einnig á milli liinna síðartöldu. Taldi hann liöfuðgalla fyrir-
komulagsins liggja í því, að ráðunautar hefðu ekki tíma til
leiðbeininga vegna ýmissa þjónustustarfa, svo sem að vera
framkvæmdarstjórar ræktunarsambanda, trúnaðarmenn við
úttekt jarðabóta og annarra framkvæmda o. s. frv.
Þessi mál voru ítarlega rædd á Hvanneyrarfundinum og