Búnaðarrit - 01.01.1945, Side 81
BÚNAÐARRIT
77
dætur Klufta, seui allar eru mjög ungar, saman viö
mæður sinar. 1. jan. 1943 eru þó 14 þcirra búnar að
eiga annan kálf (eða fleiri) og teljast því til full-
mjólka kúa og koma aneð, þegar reiknuð er út meðal
kýrnyt félagsins.
1943 voru 123 fullmjólka kýr, sem skýrsla kom yfir,
og voru 14 þeirra dætur Klufta. Meðalkýrin reyndist
svo: Nyt 3174 kg, fitu % 3.70, fitueiningar 11746. Með-
al Kluftadóttir var svo: Nyt 3465, fitu % 3.94, fituein-
ingar 13652.
Er þá greinilegt, að þær liækka meðalkúna verulega
bæði hvað fitumagn og nythæjS snertir, og þó hafa
þær sjálfar hækkað meðalkúna, sem þær eru bornar
saman við.
í úthluta Akrahrepps, fyrir utan Dalsá, er notað
naut, sem Sóti heitir, ættað frá Helgastöðum í Reykja-
dal. Sóti er nú að hækka meðalnyt í Akrahreppnum,
likt og Dýrafjarðar-Hvanni gerði í Mýrahreppnum.
í Mosvallahreppi i Önundarfirði er naut, sem Vestri
heitir, ættaður af Rauðasandi. Undan honum eru nú
fyrslu kýrnar að koma upp, og þær virðast ætla að bæta
meðalkúna þar, en eru of fáar enn til þess að full-
yrt verði um áhrif hans. Mörg nautgriparæktarfélögin
eiga nú það vel æltuð naut, að ætla mætti, að þau
bættu verulega meðalkúna, en hvort liægt verður að
ganga úr skugga um það, mcðan þau eru lifandi, er
óvíst, ef dæma má af revnslunni undanfarin ár. En
allt stendur til bóta.
IV.
Dýrafjarðar-Hvanni var í kúafárri sveit. Vestri og
Sóti eru það líka. Undir þá má leiða 30—60 kýr. Máni
er aftur á móti i kúamargri sveit, og mætti nota hann
handa nokkuð á annað hundrað kúm, en þrátt fyrir
það eru ekki eins og sakir standa aldir undan lionum
nema fáir kálfar á ári hverju. Sama er að segja um