Búnaðarrit - 01.01.1945, Page 87
BÚNAÐARRIT
83
tryggja sér þekkingu hans "í þessum efnum? Ég spyr
þá, og hvað finnst þeim?
Og ætti ekki ríkið að fara að hugsa um að koma
upp stöð til að rannsaka ungnautin í? Ætti ekki starf
Guðmundar Gíslasonar að verða byrjun á slíkri stöð,
enda þótt hún vegna atvika hefji starf sitt hér i
Reykjavik, en þar á slík stöð vitanlega ekki að vera
i framtíðinni, þegar af þeirri ástæðu, að þar vantar
skýrslur um allar eldri kýr og því samanburður dætr-
anna, sem upp yrðu aldar undan ungnautunum við
mæður sínar ómögulegur, en auk þess er fleira, sem
styður að því, að nautarannsóknarstöðin á ekki að
vera í Reykjavík.
Það, sem gera þarf nú á næstunni, er:
1. Að koma upp rannsóknarstöð ungnauta og rann-
saka með sæðingu, hvernig dætur þeirra livers
um sig reynast samanborið við mæður sinar.
2. Að koma upp nautabúum i sambandi við mjóllc-
urbúin og liafa þar þau naut, sem búið er að
reyna á nautarannsóknarsöðinni og vel hafa
reynzt, og útbreiða þaðan kyn þeirra með sæð-
ingu.
3. Að hafa á nautabúunum að minnsta kosti þar
sem menn vilja, naut af erlendu holdakyni, sem
menn geta fengið sæði lir í lcýr, sem þeir ætla að
ala undan sláturgripi.
Með þessu má á skömmum tíma, eða góðum ára-
tug, vinna rrieira á til að kynbæta nautgripina og gera
nautgriparæktina arðsama, en á öld áður.
Það er von mín, að þrátt fyrir allt liði ekki á löngu
þangað til skilningur manna á þessum málum verði
svo góður og almennur, að til framkvæmda komi sva
uð um muni fyrir nautgriparækt landsins í lieild.
Ritað í ágúst 1944.