Búnaðarrit - 01.01.1945, Síða 141
BÚNAÐARRIT
137
verksviðum sínum. — Og ef þjóðin gleymdi nú þess-
ari mótun hestsins eí'tir þörfum landbúnaðarins og
kröfum tækninnar, þá munu bændur, áður en langt um
líður, vakna við vondan draum. — Nú á tímum mun
ekki óþarft að minna menn á þá slaðreynd, að tækni er
ekki eingöngu „mótor“ og að auknar verklegar fram-
farir eru ekki eingöngu aukið mótorskrölt.
í A.-Skaftafellssýslu og Múlasýslum fóru eftirtaldir
stóðhestar í I. flokk:
28. öræfingur, ættb. 256. Fæddur 1937.
F.: Þokki frá Brún, 134.
M. frá Gróf i Mýrdal.
Grár. 143—157—30,5—19. Fríður og myndarleg-
ur. Hálsinn hvelfdur. Réttir fætur, en frainhófar
of flatir. — Eig.: Hrossaræktarfél. Öræfinga.
29. Skúmur, Árnanesi, ættb. 258. Fæddur 1940.
F.: Blakkur 129.
M.: Blökk, Holtahólum, 1240.
Jarpur. 144—161—30—18 ( 3 vetra). Fríður, reist-
ur og myndarlegur. Brött lend. Réttir fætur. —Eig.:
Hrossaræktarfélag Siðumanna.
30. Krummi, Bæ, ættli. 259. Fæddur 1937.
F.: Jarpur, Varmalæk i Borgarf., ætth. 124.
M.: Jörp, Bæ, Borgarf.
Brúnn. 143—160—31—19. Reistur, hlutfallsgóð-
ur, mjög þrekinn og vel vöðvaður. — Eig.: Hrossa-
ræktarfélag Fljótsdalshéraðs.
í Búnaðarritinu 1941, bls. 242 (síðara hefti) get ég að-
eins um fola, sem Valdimar Stefánsson í Árnanesi átti
þá, undan Blakk 129. — Foli þessi hlaut nafnið Churc-
hill og var notaður til undaneldis í Hornafirði vorið,
sem hann var tveggja vetra. Seinl um haustið var folinn
seldur Hrf. Andakílshrepps, en því miður drapst liann
af slysi nokkrum dögum eftir að hann kom þangað.
Foli þessi var einstakur að fegurð, en þó sérstaklega