Búnaðarrit - 01.01.1945, Page 147
BÚNAÐARRIT
143
verðíaunaflokka, ásamt meðalþunga hrúta í hverjum
verðlaunaflokki.
Við athugun á yfirlitsskýrslunni sést, að hrútarnir
eru mjög misvænir i hinum einstöku hreppum og sýsl-
um og flokkast mjög misjafnlega vel. Þyngstir eru
hrútar í Suður-Þingeyjarsýslu, þar næst í Norður-
Þingeyjarsýslu, svo í Eyjafirði og Skagafirði og þar
næst í Austur-Húnavatnssýslu. Fullorðnir hrútar í
þessum sýslum vógu að meðaltali frá 90.9 kg til 102.8
kg, en veturgamlir frá 72.9 kg til 78.6 kg. Léttastir voru
hrútarnir i Vesur-Skaftafellssýslu og svo í Rangár-
vallasýslu. Fullorðnir hrútar i þessum sýslum vógu að
meðaltali frá 75.0 kg til 78.4 kg, en veturgamlir frá
58.9 kg til 65.6 kg. í öðrum sýslum, sem sýningar voru
haldnar í þessi haust, vógu fullorðnir hrútar að meðal-
tali frá 82.2 kg til 89.6 kg.
Hlutfallslega flestir hrútanna hlutu I. verðlaun í
Kjósarsýslu, 32.1%, þar næst í Suður-Þingeyjarsýslu,
30.8%, svo í Skagal'jarðarsýslu, 26.8%, og í Árnessýslu,
26.6%, en fæstir í Austur-Skaftafellssýslu, 6.1%. Yfir-
leitt voru hrútarnir þyngri og betur vaxnir en i næstu
sýningarumferð á undan. Verður vikið nánar að því
siðar.
Fyrstu verðlauna hrútarnir og fjárræktin
í hverri sýslu.
Hér fer á eftir listi yfir þá hrúta, sem hlutu I. verð-
laun á sýningum haustin 1941, 1942 og 1943. Aldur
þeirra og þungi er gefinn ásamt nokkrum málum.
Einnig er getið ætternis þeirra eða uppruna og hver var
eigandi þeirra, þegar þeir voru sýndir.
Suður-Þingey jarsýsla.
Tafla A sýnir hvaða hrútar hlutu I. verðlaun í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu.
Alls hlutu 100 hrútar I. verðlaun í þessari sýslu, eða