Heilbrigðismál - 01.03.1981, Blaðsíða 28
H. Um notkun öryggisbelta í bifreiðum.
64. gr. a;
Hver sá, er situr í framsæti bifreiðar, sem búið er öryggisbelti, skal nota þaðj
við akstur á vegum.
Eigi er skylt að nota öryggisbelti við akstur aftur á bak. Sama gildir um aksturj
á bifreiðastæðum, við bensínstöðvar, viðgerðarverkstæði eða við svipaðar aðstæður.
Ákvæði 1. mgr. tekur ekki lil þeirra, sein eru yngri en 15 ára eða lægri en 150 sm.
Dómsmálaráðherra getur sett reglur, er undanþiggi aðra en að framan greinir notkun
öryggisbelta.
Eigi er skylt að nota öryggisbelti í leigubifreiðum til mannflutninga. Dómsmála-
ráðherra getur selt reglur um undanþágu frá notkun öryggisbelta við annan sérstakaiij
lakstur eða við erfið og liættuleg skilyrði.
Laf>t hefur verið fram ú Alþingi
frumvarp til laga um breyting á um-
ferðarlögum. Samkvæmt því skuht
ökumaður og J'arþegi í framsœti bif-
reiða nota öryggisbelti frú miðju
þessu úri.
árekstur og þess vegna ber þung-
uðum konum að nota öryggisbelti.
• Enginn vafi leikur á að börn
eiga að sitja í aftursætum. Þess eru
þó mörg dæmi að þau kastist fram
og lendi á framrúðu við árekstur
enda sleppa þau oft greiðlega
framhjá sætisbökum vegna smæð-
ar. Nauðsynlegt er að smábörn sitji
í sérstökum stólum í aftursæti en
stærri börn, t. d. þriggja ára og
eldri, geti yfirleitt notað venjuleg
öryggisbelti í aftursætum.
• Sumir telja að það sé frelsis-
svipting að þvinga fólk til þess að
nota öryggisbelti. Þessi rök eru
veigamikil og virðast eiga rétt á sér
a. m. k. við fyrstu sýn. En athugum
málið nánar. Hver sá sem slasast í
umferðarslysi þarfnast læknis-
hjálpar og jafnvel sjúkrahúsþjón-
ustu. Sú hjálp er greidd af skatt-
borgurum auk þess sem sá slasaði
þarfnast oft dýrrar þjónustu sem
jafnframt væri trúlega hægt að
veita öðrum þurfandi ef komist
hefði verið hjá slysi. Það er því
þjóðfélagsleg skylda hvers og eins
að verja sig gegn slysum. Sömu
rökum má beita við þá sem reykja
eða neyta víns í óhófi. Benda má á
að víða er beitt svipuðum öryggis-
ráðstöfunum t. d. í iðnaði. Sumum
iðnaðarmönnum er gert skylt að
nota sérstök hlífðarföt og heyrnar-
hlífar, hjálma og grímur. Verka-
mönnum er vinna á þökum er gert
skylt að starfa með líflínur. Sjó-
menn verða að hlýta margs konar
öryggisráðstöfunum og svo mætti
lengi telja. Þessum varnarráðstöf-
VESTURBÆJAR
APDTEK
Melhaga 20-22
Reykjavík
Sími22290
28 Fréttabréf um HEILBRIGÐISMAL 1/1981