Heilbrigðismál - 01.03.1981, Blaðsíða 31
skriðum. í sumum löndum eru at-
vinnubifreiðastjórar undanþegnir
bílbeltanotkun.
GARÐS
APÓTEK
Sogavegi 108
Reykjavík
Sími 33090
Niðurstaða
Af því sem að framan er sagt má
ljóst vera að lögleiðing bílbelta-
notkunar er eitt af brýnustu úrlausn-
arefnum varðandi fyrirbyggjandi
aðgerðir í heilbrigðismálum hér á
landi. í fyrra létust 25 manns í um-
ferðinni og 711 slösuðust. Lækkun
þessara talna um fjórðung með
þessari einu aðgerð er verkefni sem
vinna ber að með öllum tiltækum
ráðum. Jafnframt er þörf á að
kanna til hlítar á hvern annan hátt
væri unnt að hafa áhrif á háa dán-
ar- og slysatíðni, ekki síst meðal
ungs fólks.
Ólafur Óhfsson lœknir er sérfræðing-
ur í lyflœkningum, hjarlasjúkdómum og
embœttislcekningum. Hann hefur verið
landiœknir siðan 1972. Ólafur er lektor í
félagslœkningum við læknadeiid Há-
skóla tsiands.
HitastýrÖ blöndunartæki
sjálfsögö í hvert baöherbergi
Danfoss heldur jöfnum
hita í baðinu. Þú velur
rétta hitastigið og skrúfar
svo frá. Innbyggt öryggi fyrir
þau yngstu.
Gæðin eru tryggð meö ára-
tuga reynslu Danfoss í gerð
hitastilla. Danfoss hitastýröu
blöndunartækin fást í 12
mismunandi litum, innbýggó
eða utanáliggjandi, fyrir
hagkvæmt verð.
Danfoss blöndunartækið er
liður í orkusparnaði.
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SlMI: 24260
30 Fréttabréf um HEILBRIGÐISMÁL 1/1931
• Seltjarnarnes *Reykjalundur
• Kópavogur
• Garöabær
• Halnarfjörður
Húsnæðismál heilsugæslustöðva /3
RGYKJMESHÉRAD
Grein eflir
Ingibjörgu R. Magnúsdóttur
Reykjaneshéraði er skipt í fimni
heilsugæsluumdæmi: Keflavíkur-
umdæmi, Hafnarfjarðarumdæmi,
Kópavogsumdæmi, Mosfellsum-
dæmi og Seltjarnarnesumdæmi.
I þessum umdæmum er gert ráð
fyrir heilsugæslustöðvum, stærri
eða minni, á níu stöðum. Sam-
kvæmt bráðabirgðatölum frá Hag-
stofu Islands var mannfjöldi í
Reykjaneskjördæmi öllu 51.149,
hinn 1. desember 1980. Þingvalla-
hreppur með 48 íbúum fellur undir
Reykjaneslæknishérað og þvi telj-
ast íbúar á því svæði 51.197.
í Reykjaneshéraði eru fimm
sjúkrahús: Sjúkrahús Keflavíkur,
St. Jósefsspítali í Hafnarfirði, Sól-
vangur í Hafnarfirði, Vífilsstaðir í
Garðabæ, Reykjalundur í Mos-j
fellssveit svo og Kópavogshælið
(hjúkrunarstofnun fyrir þroska-
hefta).
Kjartan Ólafsson, einn af lækn-
uni Heilsugæslustöðvar Suðurnesja
er héraðslæknir í Reykjaneshéraði.
Kefla víkurumdœmi:
í Keflavíkurumdæmi er íbúatala
12.685. Þar af eru í Keflavíkur-
kaupstað 6.625. Þegar lög um heil-
brigðisþjónustu nr. 57/1978 voru
samþykkl var Vatnsleysustrandar-
hreppur settur undir Heilsugæslu
Hafnarfjarðar. Ibúar þessa hrepps,
560 að tölu, sækja nú þjónustu til
Heilsugæslustöðvar Suðurnesja að
frátöldum tveim til þrem bæjum, er
leita til Hafnarfjarðar. Það telst því
rétt að áætla, að fjöldi þeirra er
sækja heilbrigðisþjónustu í þessu
umdæmi sé um 13.245.
Keflavík (H2). Starfssvæði:
Keflavíkurkaupstaður, Njarðvík-
urkaupstaður, Hafnahreppur,
Grindavíkurkaupstaður, Miðnes-
hreppur og Gerðahreppur. Heilsu-
gæslustöð Suðurnesja tók til starfa í
Keflavík í maí 1975. Hún er í
bráðabirgðahúsnæði að Sólvalla-
götu 18. Það var tekið á leigu til 10
ára, og er að flatarmáli um 140 fer-
metrar. Það er að hluta til í kjallara.
Þar eru tvær móttökustofur lækna,
tvær litlar skoðunarstofur, mót-
tökustofa hjúkrunarfræðinga, tvö
snyrtiherbergi, símavarsla og
gangur sem notaður er sem bið-
stofa. Á efri hæð er móttökustofa,
skoðunarstofa og aðstaða fyrir rit-
ara. Þrátt fyrir þröngan húsakost
fer þarna fram mikil og sívaxandi
starfsemi. Heilsugæslustöðin sinnir
sumum þáttum heilsugæslu fyrir
Suðurnesin öll. Við stöðina starfa
þrír læknar, hjúkrunarforsljóri,
hjúkrunarfræðingar í tveim stöð-
um, ljósmóðir í hlutastarfi, ritari og
símavörður. Þá starfa við stöðina í
hlutastörfum nokkrir sérfræðingar
í lækningum, má þar nefna barna-
lækni, kvensjúkdómalækni, lyf-
lækni, húðsjúkdómalækni og
augnlækni. Þeir eru flestir starfandi
lleilsugæslusUið Suðurnesja er ú
neðri hœð hússins að Sólvallagötu IS
í Kejlavík. Húsnœðið er litið, en
„þröngt mega súttir sitjaeins og
sést ú tnyndinni af hiðstofunni. Nú er
verið að teikna nýtt húsnœði fyrir
heilsugœsluna.
Fréttabrél um HEILBRIGÐISMÁL 1/1981 31