Heilbrigðismál - 01.03.1984, Page 15
hvítuefna í sárum. Talið er að þetta
efni geti einnig bundið efnakljúfa
eins og pepsín svo og gallsölt, en þau
eru jafnframt talin hafa nokkur áhrif
á myndun sára í meltingarvegi. Lyf
þetta er talið nær jafnvirkt í græðslu
skeifugarnarsára eins og Cimetidine,
sem er sýruhemjandi. Verið er að
rannsaka áhrif lyfsins á græðslu
magasára. Aukaverkanir af lyfinu
virðast álíka tíðar og af Cimetidine.
Önnur efnasambönd í þessum flokki
hafa komið fram á sjónarsviðið og
virkari efni eiga sjálfsagt eftir að sjá
dagsins Ijós í náinni framtíð.
Sár á slímhúSarþekjunni geta mynd-
ast í þeim hluta meitingarvegar sem
verður fyrir áhrifum af magasafa og
efnakljúfnum pepsín.
Lyf sem auka slímframlciðsluna.
Carbenoxolone er slíkt efni. Það
inniheldur sýru (glycyrrhizic acid),
sem finnst einnig í lakkrís, og er hið
virka efni. Það eykur seitur og við-
ioðun slímhúðarinnar og styrkir
magaþekjuna til að verjast magasýr-
unni. Niðurstöður rannsókna benda
til þess að þetta lyf hafi nokkur áhrif
við græðslu maga- og skeifugarnar-
sára. Aukaverkanir lyfsins eru hins
vegar vel þekktar og hvimleiðar og
geta valdið brenglun á söltum og
vatnsbúskap líkamans, og leitt til
hækkunar á blóðþrýstingi. Önnur
efni í þessum flokki eru svokölluð
prostaglandín, sem myndast í líkam-
anum úr fitusýrum. Samsettar eft-
irlíkingar af þessum efnum eru harð-
ari af sér og brotna síður niður en
hin náttúrulegu prostaglandín, þar
til þau koma niður í magann. Mörg
slík samsett prostaglandín eru mjög
virk í meðferð á sárum í efri melting-
arvegi. Prostaglandínin auka seitur
slíms og framleiðni bíkarbónats, sem
upphefur sýru og eykur einnig blóð-
flæði til slímhúðar magans. Nokkur
þessara efna hindra einnig sýruseitur
og minnka framleiðslu pepsíns. Nú
er verið að rannsaka fjölda efna,
sem tilheyra þessum flokki, við með-
ferð á sárum í meltingarvegi. Önnur
efni sem hafa annan verkunarmáta
(Benzimidazole) eru til athugunar og
munu tvímælalaust koma fram á
sjónarsviðið sem virk lyf við þessum
algenga sjúkdómi.
Ásgeir Theodórs er sérfrædingur í
meitingarsjúkdómum og starfar á St.
Jósefsspítala í Hafnarfirði og á Borgar-
spítalanum í Reykjavík.
HEILBRIGÐISMAL 1/1984 15