Heilbrigðismál - 01.03.1984, Qupperneq 20
Meira en 98% barna
ná nú tvítugsaldri
- en aðeins 50% fyrír einni öld
Grein eftir Ólaf Ólafsson og Jónas Ragnarsson
Um miðja síðustu öld kom hingað
danskur læknir, P.A. Schleisner, til
að rannsaka sjúkdóma á íslandi,
heilsufar fólks og Iifnaðarhætti.
Hann skrifaði doktorsritgerð um
þessa rannsókn sína og kom þar
m.a. fram að á fyrri hluta nítjándu
aldar dóu 300 af hverjum þúsund
börnum áður en þau náðu eins árs
aldri. En nú er öldin önnur og ung-
barnadauðinn kominn nokkuð niður
fyrir 10 af þúsundi.
Nú mega 97,6% nýfæddra drengja
og 98,8% stúlkna vænta þess að ná
tvítugsaldri. Að meðaltali eru því
einungis 1,8% nýfæddra barna sem
ná ekki tvítugsaldri, samanborið við
3,8% fyrir aldarfjórðungi og 49,5%
fyrir einni öld.
Ungbarnadauðinn. Þetta hugtak
nær til dánartíðni á fyrsta aldursári,
en með burðarmálsdauða er hins
vegar átt við andvana fædda og dána
á fyrstu viku. Opinberar upplýsingar
um ungbarnadauðann ná aftur til
áranna 1871-75 en þá létust 219 af
hverjum þúsund börnum. Síðan hef-
ur dregið nær stöðugt úr ungbarna-
dauðanum. Hann var um 100 af þús-
undi í byrjun þessarar aldar, en var
um 50 af þúsundi á fyrri hluta fjórða
áratugarins. Meðaltal áranna 1976—
80 sýnir að þá dóu aðeins 35 börn
yngri en eins árs en 4290 börn fædd-
ust lifandi, þannig að ungbarna-
dauðinn var 8,2 af þúsundi (8,6 hjá
drengjum en 7,7 hjá stúlkum). Árið
1981 var þetta hlutfall 6,0 af þúsundi
en 7,1 árið 1982. Þessar tölur skipa
íslandi meðal þeirra þjóða heims þar
sem dánartíðni barna á fyrsta ári er
hvað lægst (hin norrænu löndin 6,5-
9,3 árið 1981). Á sama tíma búa
sumar þjóðir Afríku og Asíu við
svipaðan ungbarnadauða og hér var
á síðustu öld.
Dánartíðni 1 — 19 ára. Síðustu ár
hafa dáið að meðaltali 10 börn á ári
á aldrinum 1—4 ára, 8 börn 5-9 ára,
7 börn 10-14 ára og 18 unglingar á
aldrinum 15-19 ára. Séu þessir ald-
urshópar teknir saman kemur í ljós
að umtalsverð lækkun hefur orðið á
dánartíðni stúlkna síðustu áratugi og
nemur hún 92% frá 1931—35 til
1976—80. Að því er varðar drengi
UNGBARNADAUÐI Á ÍSLANDI 1931-1980
Dánir árlega innan eins árs
sem hlutfall af þúsund lifandi fæddum.
1931 1936 1941 1946 1951 1956 1961 1966 1971 1976
-35 -40 -45 -50 -55 -60 -65 -70 -75 -80
DANARTIÐNI BARNA OG UNGLINGA
Dánir árlega á aldrinum 1-19 ára,
miðað við 100.000 í öllum hópnum.
-35 -40 -45 -50 -55 -60 -65 -70 -75 -80
20 HEILBRIGÐISMÁL 1/1984