Heilbrigðismál - 01.09.1984, Qupperneq 4

Heilbrigðismál - 01.09.1984, Qupperneq 4
r I nýjum heimkynnum Hinn 31. ágúst sl. var hið nýja hús Krabbameinsfé- lagsins að Skógarhlíð 8 vígt við hátíðlega athöfn. A öðrum stað í þessu blaði er sagt frá vígslunni og birt nokkur þeirra ávarpa sem flutt voru við það tækifæri. Allir þeir sem tengdir eru Krabbameinsfélaginu á einn eða annan hátt munu fagna þeim áfanga sem hér hefir náðst. Verðskuldaða athygli vakti það traust og sá vel- vilji sem þjóðin sýndi á haustmánuðum 1982 þegar hún með öflugum, frjálsum fjárframlögum gerði Krabba- meinsfélaginu kleift að kaupa nýtt hús og búa það tækj- um. Þetta kemur meðal annars fram í ávarpi forseta íslands er hún segir: „Við erum hér vitni að stórhug sem hefur borið árang- ur á ótrúlega skömmum tíma, stórhug þjóðar sem með átaki safnaði fé til að eignast þetta hús til vísindalegra rannsókna og ennfremur stórhug og árvekni nokkurra einstaklinga - innlendra og erlendra - sem gengið hafa fram fyrir skjöldu og fært þessari vísindastöð gjöf sem seint verður fullþökkuð og aldrei ofmetin.“ „En vandi fylgir vegsemd hverri", eins og dr. Gunn- laugur Snædal, formaður Krabbameinsfélags íslands, benti á í ávarpi sínu. Það er án efa einlæg ósk velunnara félagsins að því megi takast á komandi árum að sýna í verki með starfsemi sinni að það sé verðugt þess trausts sem því hefir verið sýnt. Það er ekki ætlunin hér að ræða framtíðaráætlanir Krabbameinsfélagsins. Það er verksvið stjórnar félagsins að fjalla þar um og til þess hefir hún fyllsta traust. Eg vil þó taka undir orð Matthíasar Bjarnasonar heilbrigðis- málaráðherra þar sem hann segir í ávarpi sínu: „Ég held að þeir sem stofnuðu krabbameinsfélögin hafi gert ráð fyrir því að þau yrðu á hverjum tíma forgönguhópur, sem reyndi fyrir sér um nýjar leiðir í forvarnarstarfi og sjúkdómaleit." Hin nýju húsakynni og tækjabúnaður munu vissulega skapa möguleika á auknu leitarstarfi með nýjum og bættum aðferðum. Þar mun efst á blaði vera mikil aukning á leit að brjóstakrabbameini á byrj- unarstigi, svo framarlega sem unnt verður að skapa þeirri starfsemi fjárhagslegan grundvöll. Þá munu uppi hugmyndir um að hefja leit að ristilkrabbameini og er aðstaða til slíkrar leitar einnig fyrir hendi í hinum nýju húsakynnum. Hin mikla tölvugjöf til Krabbameinsfélagsins, sem kynnt var á opnunarhátíðinni, mun stórlega bæta mögu- leika á úrvinnslu þeirra gagna sem safnast hafa og safnast munu á vegum Krabbameinsskrárinnar. Vísindaleg úr- vinnsla og rannsóknir byggðar á þeim gögnum munu framvegis sem hingað til verða mikilvægt viðfangsefni. Tölvubúnaðurinn mun einnig koma að notum við úr- vinnslu gagna Leitarstöðvarinnar og Frumu- rannsóknastofunnar. Þegar talað er um forvarnarstarf Krabbameinsfé- lagsins skil ég það orð svo að meðal annars sé átt við ýmiss konar vísindalega rannsóknarstarfsemi til leitar að orsökum og orsakaþáttum krabbameins. Ég vænti þess að sá hluti starfseminnar verði í nánustu framtíð efldur í hinum nýju húsakynnum. Að sú sé ætlunin þykir mér mega ráða af þeirri ákvörðun stjórnar Krabbameinsfé- lagsins að ráða forstjóra sem verði tengiliður milli hinna ýmsu deilda starfseminnar, stefnumarkandi í ákvarðana- töku um ný verkefni og hvati í skipulagningu starfsem- innar á hverjum tíma. Um leið og Heilbrigðismál flytja Krabbameinsfélaginu bestu heillaóskir á þessum merku tímamótum bjóðum við dr. G. Snorra Ingimarsson vel- kominn til starfa að hinum mikilvægu verkefnum sem framundan eru. 4 HEILBRIGDISMAL 3/1984

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.