Heilbrigðismál - 01.09.1984, Blaðsíða 9
Iþróttaslys
Grein eftir
Hrafnkel Óskarsson
Á undanförnum árum hefur
íþróttaiðkun aukist mjög mikið hér á
landi. Með enn lengri frítíma má
búast við að sú þróun haldi áfram.
Iðkun íþrótta fylgir alltaf viss hætta á
slysum og því má gera ráð fyrir að
slíkum slysum fjölgi á næstu árum.
Til að kanna tíðni íþróttaslysa hér
á landi var farið yfir gögn um þá sem
komu á Slysadeild Borgarspítalans
árið 1980 og skráð var að hefðu slas-
ast við íþróttaiðkun. Þegar frá höfðu
verið taldir þeir sem voru rangt
skráðir svo og þeir sem slasast höfðu
við hestamennsku (rúmlega 300)
kom í ljós að 2468 manns höfðu
slasast í öðrum íþróttum þetta ár,
1833 karlar og 635 konur. Þetta eru
6,6% af öllum sem komu á Slysa-
deildina umrætt ár. Miðað við að
þessar tölur taka að mestu leyti til
höfuðborgarsvæðisins má áætla að á
fimmta þúsund Islendingar slasist ár
hvert við íþróttaiðkun, þar af á
fimmta hundrað hestamenn.
Sjö af hverjum tíu sem slasast í
íþróttum eru á aldrinum frá 10 til 24
ára, og er það helmingi hærri tíðni
en í öðrum slysum. Hæst er tíðnin á
aldrinum 10—14 ára en 6,3% af
Reykvíkingum á þeim aldri slasast
árlega við fþróttaiðkun, 5,4% af
15 — 19 ára unglingum og 3,6% af
aldurshópnum 20—24 ára.
Algengustu íþróttaslys meðal
karla voru í knattspyrnu (805), á
skíðum (273), í handbolta (224),
körfubolta (165) og leikfimi (100).
Konunum var hættast á skíðum
(216), í leikfimi (109) og í handbolta
(86).
í 30-50% tilvika þurftu þeir sem
slösuðust að koma til eftirmeðferð-
ar. Skíðafólkið var lengst í meðferð,
eða 10,4 daga að meðaltali, þeir sem
ekki voru innlagðir, handknattleiks-
menn í 6 daga og fimleikafólk, knatt-
spyrnumenn og körfuknattleiks-
menn um 5,5 daga. Enginn beið
bana af íþróttaslysi á þessu ári, enda
er slíkt fremur sjaldgæft. Tíðni inn-
lagna í algengustu slysahópunum var
frá 2,9% í handknattleik upp í 7,4%
hjá körfuknattleiksmönnum.
Nær helmingur áverka var á fing-
ri, ökla eða hné. Eins og gefur að
skilja var þetta þó misjafnt eftir
íþróttagreinum. Fingurmeiðsli voru
Síðustu árin hefur vegur skíða-
íþróttaima vaxið mjög, en kapp er
best með forsjá í þeim leik sem
öðrum.
t.d. þriðjungur slysa í handknattleik
og körfuknattleik, en slys á rist og
tám algengust leikfimislysa.
Beinn kostnaður á Slysadeild
Borgarspítalans vegna íþróttaslysa
er um 5 milljónir króna á ári, á
núgildandi verðlagi, en þar við bæt-
ist legukostnaður, vinnutap o.fl, og
áætlaður kostnaður alls ekki undir
15 milljónum króna. Má áætla að
kostnaður vegna íþróttaslysa á öllu
landinu nemi a.m.k. 30 milljónum
króna á ári.
Pað er því ljóst að íþróttaslys eru
umfangsmeira vandamál en álitið
hefur verið, og má drepa hér á
nokkrar leiðir til úrbóta.
Algengt er enn að slys verði við
skíðaiðkun vegna þess að útbúnaður
er ekki sem skyldi, og má í því sam-
bandi minna á gildi góðra öryggis-
bindinga. Byrjendur mega ekki ætla
sér um of og slasa sjálfa sig og aðra
með því að glíma við brekkur sem
þeir ráða engan veginn við. Áber-
andi var í þessari rannsókn að mörg
smábörn slösuðust á nýju skíðunum
sínum fljótlega eftir jólin, og ættu
foreldrar að leiðbeina börnunum eft-
ir getu og fylgjast sérstaklega vel
með því í byrjun að þau tefli ekki í
tvísýnu. All mörg slys verða við
skíðalyftur og ætti að vera auðvelt
að koma að mestu í veg fyrir þau.
Líklega er stærstur sá hópur
íþróttamanna sem slasast vegna of
lítils undirbúnings (upphitunar) fyrir
átök í æfingum eða leik. Tognanir
ýmiss konar, liðbanda- og sinaslit
verða því algengari sem undirbún-
ingur er minni. Sérstaklega má
benda þeim sem stunda íþróttaæf-
ingar án leiðbeinenda eða þjálfara á
það að verja 10-15 mínútum í upp-
hitun og teygjuæfingar. Vegna
aukins áhuga á líkamsrækt skal á
það bent að mikilvægt er að gera
æfingar á réttan hátt og kunna sér
hóf. Góð líkamsþjálfun næst ein-
göngu á löngum tíma, þeir sem
reyna að ná árangri með offorsi í
fljótheitum gefast oftar en ekki upp,
eða þurfa jafnvel að leita til slysa-
deildar. Sá er ekki tilgangurinn með
íþróttaiðkuninni.
Höfundur þessarar greinar,
Hrafnkell Óskarsson læknir, starfar
á Landspítalanum.
HEILBRIGÐISMÁL 3/1984 9